Hringtorgaakstur

Hér skal spjalla um BMW.

Postby Einarsss » Thu 04. Sep 2008 16:21

saemi wrote:
grettir wrote:Ég skil ekki þessar umræður um að taka bara ytri hring ef maður ætlar út á fyrsta exit :?


Nákvæmlega.

Ég geri mikið af því að fara á ytri hring þó ég ætli ekki að fara strax á fyrsta útgangi út úr hringtorginu. Eins og Grettir benti réttilega á þá myndi umferðin verða að stöppu ef allir ætla að fara á innri hring. það eru mjög mörg hringtorg þannig að innri akreinin fer út á 3ja afleggjara í meira en 50% tilvika. Hvað er þá rökréttara en að ytri akreinin geri slíkt hið sama og fari líka þar út á háannatíma?

Þetta setur að vísu þá kröfu á mann að maður fylgist vel með hvað bíllinn fyrir innan er að gera og það getur verið mjög erfitt vegna þess að íslendingar KUNNA eða NENNA eða VILJA ekki gefa stefnuljós.

Hvernig væri nú að fara að gefa stefnuljós þið sem leggið það ekki í vana ykkar :wink:


sammála þessu, og þeir sem nenna að gefa stefnuljós gera það yfirleitt þegar þeir eru á leiðinni úr torginu ... væri best að gefa stefnu ljós til vinstri svo aðrir viti að þú sért ekki á leið útúr torginu alveg strax
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby UnnarÓ » Thu 04. Sep 2008 16:28

Sammála þessu með stefnuljósin, alveg óþolandi hvað margir nota ekki stefnuljós í hringtorgum. Íslendingar virðast bara vera lítið gefnir fyrir stefnuljós almennt.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Postby saemi » Thu 04. Sep 2008 16:50

UnnarÓ wrote:Sammála þessu með stefnuljósin, alveg óþolandi hvað margir nota ekki stefnuljós í hringtorgum. Íslendingar virðast bara vera lítið gefnir fyrir stefnuljós almennt.


Jebb. Íslendingar eru almennt bara að hugsa um rassgatið á sjálfum sér, er alveg slétt sama um allt í kringum sig. Umferðarmenningin á Íslandi er því miður á mjög lágu plani.

Það eru allir í stríði á Íslandi. Næsti maður skal sko ekki komast feti fram fyrir mig! Glætan að ég gefi séns. Frekar tek ég fram úr hægra megin, fer yfir á rauðu og það skiptir ekki neinu máli þó ég sé á miðjum gatnamótum og stöðvi alla umferð. Ég ÞARF að komast áfram strax!!!!

Svo er best að losa sig við restina af þessum frönskum og pappadraslið frá Mc Donalds út um hliðarrúðuna sem snöggvast fyrst ég er stopp og hef lausa hina hendina. Þarf nefnilega bara aðra hendi til að SMS-a.
:lol:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby gunnar » Thu 04. Sep 2008 17:04

saemi wrote:
UnnarÓ wrote:Sammála þessu með stefnuljósin, alveg óþolandi hvað margir nota ekki stefnuljós í hringtorgum. Íslendingar virðast bara vera lítið gefnir fyrir stefnuljós almennt.


Jebb. Íslendingar eru almennt bara að hugsa um rassgatið á sjálfum sér, er alveg slétt sama um allt í kringum sig. Umferðarmenningin á Íslandi er því miður á mjög lágu plani.

Það eru allir í stríði á Íslandi. Næsti maður skal sko ekki komast feti fram fyrir mig! Glætan að ég gefi séns. Frekar tek ég fram úr hægra megin, fer yfir á rauðu og það skiptir ekki neinu máli þó ég sé á miðjum gatnamótum og stöðvi alla umferð. Ég ÞARF að komast áfram strax!!!!

Svo er best að losa sig við restina af þessum frönskum og pappadraslið frá Mc Donalds út um hliðarrúðuna sem snöggvast fyrst ég er stopp og hef lausa hina hendina. Þarf nefnilega bara aðra hendi til að SMS-a.
:lol:


Rosalega mikið til í þessu hjá þér. Ég tók eiginlega mest eftir þessu þegar ég fluttist til Akureyrar. Sumarið áður en ég fór var ég að vinna sem sendill fyrir vörubílaverkstæði og var á ferðinni allann daginn (áður en kreppan kom hehe).
Þá var maður alveg á fullu allann daginn og mikil pressa að vera röskur. Allir voru fyrir manni og þetta var ekkert smá þreytandi til lengdar. Eftir að hafa verið í umferðinni í Reykjavík alveg í heilt sumar alla daga og fara svo til Akureyrar var engin smá breyting.

Hérna eru bara allir á chillinu og umferðin auðvitað rólegri,,, en Akureyringar eru hins vegar ekki hrifnir af stefnuljósum og ansi fáir kunna á hringtorg
:lol:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby SteiniDJ » Thu 04. Sep 2008 17:26

saemi wrote:
UnnarÓ wrote:Sammála þessu með stefnuljósin, alveg óþolandi hvað margir nota ekki stefnuljós í hringtorgum. Íslendingar virðast bara vera lítið gefnir fyrir stefnuljós almennt.
Svo er best að losa sig við restina af þessum frönskum og pappadraslið frá Mc Donalds út um hliðarrúðuna sem snöggvast fyrst ég er stopp og hef lausa hina hendina. Þarf nefnilega bara aðra hendi til að SMS-a.
:lol:


Talandi um að SMSa. Sá konu á fimmu (YO-XXX), í símanum, að senda sms OG að reykja í hringtorgi. Er ekki í lagi með fólk?
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Postby JOGA » Thu 04. Sep 2008 17:28

Tek eftir þessu hér í UK. Allir voða kammó í umferðinni. Hleipa manni og þakka pent fyrir þegar maður gerir það sama. Strætóbíltjórar reka þumal út um rúðuna þegar maður hleypir þeim o.s.frv.

Mætti alveg taka umferðarmenninguna á Íslandi í gegn.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: Hringtorgaakstur

Postby iar » Thu 04. Sep 2008 17:51

ta wrote:Er það ekki rétt hjá mér að sá sem fer inní hringtorg , frá vinstri akrein og inní innri hríng, hann má ekki fara út í fyrsta "exiti"


Jú það er rétt hjá þér. Hef lent svona árekstri, fékk bíl inn í bílstjórahurðina hjá mér sem fór inn í fyrsta og ætlaði beint út. Ég fékk það 100% bætt. ( Hinn var reyndar hjá sama tryggingafyrirtæki svo kannski fengu báðir 100% bætt. ;-) )

Við vorum báðir á Hringbraut á leið úr vesturbænum og þetta gerðist í hringtorginu við Suðurgötu, ég ætlaði semsagt beint áfram Hringbrautina á hægri akgrein en hann ætlaði að beygja til hægri á Suðurgötu.

Ég prentaði út lýsingu á hringtorgaakstri af vef Umferðarstofu og heftaði við tjónaskýrsluna. :lol:

En hér er lýsing frá vef Umferðarstofu:

Umferðarstofa wrote:Akstur um hringtorg

Á vel hönnuðu hringtorgi er auðvelt að aka.

Meginreglan er sú að sá sem ætlar að beygja út úr torginu á fyrstu gatnamótum, skal undantekningarlaust vera á hægri akrein, það er að segja á ytri akreininni í hringtorginu.

Þá er mælt með því að sá sem ætlar að aka framhjá fyrstu gatnamótunum og fara út á öðrum gatnamótum sé alla jafnan einnig á ytri akreininni, þótt ekkert banni honum að fara í innri hring.

Ætli ökumenn hins vegar að beygja út úr hringtorgi á þriðju eða fjórðu gatnamótum, skulu þeir fara í innri hring. Ekkert bannar þeim þó að aka í ytri hring, en í mikilli umferð má búast við að þeir valdi truflun og óþægindum fyrir aðra ökumenn haldi þeir sig í ytri akrein fram hjá svo mörgum gatnamótum.

Aldrei má skipta um akrein í hringtorgi og hér á landi er reglan sú að umferð á hringtorgi hefur ávallt forgang fyrir þeim sem eru að aka inn í það.


Og Gunnar varðandi aKureyringana þá sagði einn mér þegar ég gaf stefnuljós á aKureyri að ég væri að koma upp um mig og fólk sæi um leið að ég væri aðkomumaður fyrst ég væri að gefa stefnuljós. :-)
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby BirkirB » Thu 04. Sep 2008 19:13

Ég held að akureyringar hafi lengi verið þekktir fyrir að gefa ekki stefnuljós...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby íbbi_ » Thu 04. Sep 2008 19:32

ég fer á innri hring ef ég ætla taka hringtorgið, og á ytri ef ég ætla út á fyrsta eða öðru exit, fólk sem ætlar að taka allt hringtorgið á ytri er bara að biðja um bíl í hliðina, veit ekki hversu oft ég hef lent í því að bomba næstum inní hliðina á bíl sem "keyrir fyrir mig"

það er hinsvegar annað sem böggar mig meira og það er að það virðist alveg 50% ökumanna keyra beint í gegnum hringtorgið og skera báðar beygjurnar þannig að ef maður fer rétt eftir ytri akreinini þá keyrir maður inn í hliðina á bílnum úr innri hringum
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Hannsi » Thu 04. Sep 2008 20:45

Jarðsprengja wrote:Ég held að akureyringar hafi lengi verið þekktir fyrir að gefa ekki stefnuljós...

Þá fell ég vel í umhverfið þarna :lol:
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby Angelic0- » Thu 04. Sep 2008 20:52

Hannsi wrote:
Jarðsprengja wrote:Ég held að akureyringar hafi lengi verið þekktir fyrir að gefa ekki stefnuljós...

Þá fell ég vel í umhverfið þarna :lol:


Þú gefur bara stefnuljós þegar að þú ert að drifta :lol:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Bjarkih » Thu 04. Sep 2008 22:31

Þetta með stefnuljósin hér er bull held ég, ég gef alltaf stefnuljós og mér finnst það frekar vera undantekning en hitt ef það er ekki gert. Hinsvegar var þetta slæmt hérna fyrir nokkrum árum. Svo þarf maður ekkert að pæla í hringtorgum hér því hér er bara eitt tveggja akgreina hringtorg og það er bara eitt exit af því með tvöfaldri akgrein, ekki mjög gáfulegt.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Postby bErio » Thu 04. Sep 2008 23:13

Hann á innri á allaf réttin
NEMA þegar hann fer út á fyrsta og lendir í óhappi, þá er hann í órétti.
Félagi minn lenti í þessu og var dæmdur í 100% rétti
BMW E39 530D '03 ///M-Tech - Stations
BMW E39 540i '00 - Sedans

E39 k1ng
Sævar P.
User avatar
bErio
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3691
Joined: Mon 25. Sep 2006 09:39

Postby fixxxer » Fri 05. Sep 2008 00:21

Ok, ytri akgrein er í rétti í þessu tilviki... en hvar er sönnunarbyrðin?
Ef konan segir einfaldlega að hún hafi verið að fara út í 2. exiti og ökumenn tóku ekki niður númer vitna, á hverjum liggur sönnunarbyrðin?
e90 320i Arctic
fixxxer
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 56
Joined: Tue 29. Jun 2004 01:11

Postby fart » Fri 05. Sep 2008 10:48

Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests