Þegar að ég er að keyra og bremsa þá heyrist svona stuðhljóð stundum.
Þetta gerist mjög sjaldan en þó allavega einusinni í bílferð.
Þetta lýsir sér þannig að þegar að ég er að keyra og stíg bremsuna niður þá heyrist frá henni hljóð eins og heyrist þegar að sími er að titra.
Svona titringshljóð og ég finn titringinn upp í löpp.
Þó að ég taki löppina af bremsunni þá heldur hljóðið áfram en varir þó aldrei lengur en svona um það bil 3 sec. Hljóðið einsleitt og jafnlangt.
Ég varð fyrst var við þetta í rigningu núna fyrir 3 dögum.
ABS ljósið logar hjá mér öðruhverju líka. Bara þegar að því virðist líða þannig.


