by Kristjan » Sun 10. Aug 2008 13:20
Lang flestir koma samt gagngert á tónleika til að heyra vinsælustu lögin. Mainstream liðið vill fá að heyra allar gömlu lummurnar, og um leið og það fattar að það fær ekki að heyra þær fer það beint í baklás og neitar að hlusta á tónlistina með jákvæðu hugarfari.
Ég var til dæmis mjög sáttur við tónleika AIR sem eru þeir síðustu sem ég fór á, því að þar var perfect balance milli vinsælla laga og nýrra og ekki jafn þekktra laga.
Svekktur samt að fá ekki að heyra Cherry blossom girl eða All i need.
Enginn BMW