Jæja búinn að keyra hann einhverja 100 km núna.
Lenti í smá leiðindum með hægri ströttann. Kom eitthvað leiðindar hljóð þegar ég fór yfir ójöfnur. Það kom svo í ljós að róin sem festir þetta allt hafði einhvern veginn tekist að losna, eða þá að hún hafi ekki verið hert almennilega af mér þegar ég setti þetta saman. Gæti hugsanlega hafa verið að þetta hafi ekki passað allt saman þarna meginn og þegar ég herti þetta þá hafi þetta bara verið einhvern veginn vitlaust í.
Þakka honum Gunna Gst kærlega fyrir hjálpina með þetta vandamál .
En hins vegar er annað óhljóð reyndar á kreiki ennþá. Klingir eitthvað í gorminum þegar ég sný stýrinu lock í lock á litlum hraða. Á eftir að skoða það aðeins betur hvað það getur verið.
Oh ég elska custom hluti .
