Jæja strákar. Við þekkjum það nú flestir að vera ungir og vitlausir. Ég hef í gegnum tíðina verið í slagtogi við nokkrar ágætar konur. Ég á semsagt tvö börn með tveimur konum.
Ég var tvítugur þegar hún Diljá Mist kom í heiminn. Hún varð 20 ára í vikunni.
Var staddur í grillveislu með nokkrum æskuvinum í gær og þegar nokkrir kaldir voru búnir að renna sína leið í gegnum kerfið þá þótti það voðalega hnyttið að kalla mig "helgarpabbann". Jú jú, ég skil svo sem alveg húmorinn í því, ég tek mig nú ekkert mjög alvarlega.
Ég á tvær yndislegar dætur og ég elska þær út af lífinu. Barnsmæður mínar eru eins og gefur skilja ekki konur mínar í dag og er ég þ.a.l. "helgarpabbi".
Því langaði mig að kanna, eru margir "helgarpabbar" á kraftinum?



