Já maður var óttalegur looser að mæta þarna og vera ekki með neinn
vagn í eftirdragi. Mér finnst þessum vögnum hafa fjölgað alveg rosalega
og liggur við að meirihluti bílanna á vegunum hafi verið með svoleiðis
á eftir sér. Það sem er líka verra er að fólk kann ekki að keyra með þetta,
vagnarnir eru að danglast yfir miðlínuna á veginum - stórhættulegt þegar
verið er að taka framúr og ekki síður fyrir umferð út gagnstæðri átt.
Hef nú ekki mælt eyðsluna á M5 nýlega í innanbæjarakstri en hún er
sjálfsagt á bilinu 20-25 ef maður er eitthvað að leika sér. En þessi
eyðsla núna var svosem ekki neinn sparakstur, var yfirleitt í ca. 120,
voða þægilegur hraði þar sem hann er að dóla í 2500 snúningum í 6. gír.
Svo voru tekin smá rönn þar sem hægt var - samt ekki nein dauðasigling.
Það hraðasta sem ég fór var í Kelduhverfi í 2XX en þá var einn gamall
bekkjarbróðir úr Versló (og kennari Arons Andrew) að fá rúnt. Hann var
eiginlega kjaftstopp eftir þennan rúnt og það gerist ekki oft með þennan
kappa
Var frekar latur að taka myndir - smellti þessari þar sem mér fannst
birtan svo flott. Varðandi vegina þá var nú vegurinn fyrir Tjörnes
eiginlega bestur. Hann er ekki nema nokkura ára gamall og er betri
en þjóðvegur 1 ef eitthvað er.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...