bebecar wrote:Hann getur pottþétt gert betur enda voru þeir ekki að reyna að slá nein met - bara að testa. Það var víst líka mikill mótvindur á beina kaflanum )(Döttinger höhe?) og það sést eiginlega á myndbandinu hvað hann er lengi upp á hraða þar. Munar eflaust miklu þegar það sem Þórður nefnir er bætist við...
Þetta er ótrúleg græja og ég verð að segja að ég hef lúmskt gaman af því að sjá Corvette skila svona góðum tíma á akkúrat þessum stað (Z06 var engin aukvisi þarna heldur!).
Annað: það er mikið talað um að GT-R sé í raun öflugri en hann er sagður og talað um að það geti munað allt að 100 hestöflum. Þrátt fyrir að það muni kannski ekki það miklu í þyngd á þessum tveimur þá skiptir þyngd auðvitað miklu máli við þessar aðstæður.
Nissan GT-R 1730 kíló á móti 1519 kílóum hjá Corvette.... eru þetta réttu tölurnar?
Já hreint út sagt magnaðir bílar báðir tveir. Hálf neyðarlegt að GT2 geti ekki betur, nú eða CGT eða SLR.
Já og varðandi þyngd, þá er kanski skemmtilegasti punkturinn að þyngd virðist ekki skipta eins miklu máli og uppsetning (mechanical grip) miðað við samanburðinn á E30 og E90 touring cars. Nýrri bæði þyngri og aflminni, samt hraðari.



