bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 06:20

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 50 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 20:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
aflið kemur ekki úr oktan tölunni bara svo það sé alveg á hreinu.

breyting á kveikjutíma hefur aftur á móti áhrif.

hver vélaruppsetning hefur það sem er kallað minimum best timing.
sem þýðir að einhver x flýting nær hámarks afli við þann snúning sem og álag/load/loftflæði, og minimum þýðir að flýting um 1-2 gráður meira gefur sama power, og að sjálfsögðu velur maður þá lægstu mögulegu flýtinguna til að fá eitthvað x power(hugsa þetta per álag og snúning því að það er aldrei sama flýting fyrir allt powerband sem og allt load á vél

þegar er skipt um ása þá flyst MBT til, eða meiri þjappa getur líka fært þetta til, sem og túrbó, og svo framvegis.

það er hægt að flýta fram yfir mbt enn þá byrjar powerið að minnka,
á vélum með mikið álag(háa þjöppu og eða forced induction t.d) þá verður fjöldi gráðanna til að ná sem mestu alltaf minni og minni,
t,d gæti verið 50hö munur á að flýta 24gráður á móts við 25gráður á bíl sem er að blása 1,5bar boost. 3gráður tilbaka og 100hö eru horfin, þess vegna þarf almennilegann bekk til að geta tjúnað þetta að alvöru

Þetta bmw hjól er þá með closed loop knock control sem dregur kveikjuna tilbaka svo hægt sé að keyra á hverju sem er.

Þetta er svona smá innlegg í afhverju kveikjuflýting er breytileg og afhverju kveikja skiptir meira máli í sambandi við eyðslu heldur enn bensín notkun.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 21:13 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
oktantalan er náttúrulega bara mælikvarði á þjappþol bensíns og hefur ekkert með orkuinnihald að gera. Sjálfsagt hefur bensín mismunandi orkuinnihald, en það fer allavega ekki eftir oktantölunni.

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 21:24 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Nei ég veit að aflið kemur ekki úr oktan tölunni enda er t.d. gas með háa oktantölu en lágt orku innihald.

En það er samt t.d. meiri orka í háoktan bensíni en í lágu oktan.

Það hlýtur að vera óhætt að segja að með hærri oktan tölu er hægt að ná meira afli með því að flýta kveikju?

Ok, setjum þetta upp á einfaldan hátt. Þú ert með high performance kvartmílu græju (örugglega Cudu :lol: ) og hún skilar einhverju X afli, segjum 1000 hö með 95 oktana dælubensíni. Er hægt að fá vélina til að skila meira afli t.d. með háoktan bensíni, eins og við hjá Skeljungi fluttum inn í tunnum, sem var 120 oktan?

Og í þriðja skiptið þá er ég ekki að segja að orkan fari eftir oktan tölunni, bara að benda á þá staðreynd að þegar um bensín er að ræða er hærra orku innihald í oktanháu bensíni en oktanlágu (sem á t.d. ekki við um dísil eða gas eins og ég benti á áður).

Hinsvegar, með háoktan bensíni er hægt að ná hærri þjöppu og því meira afli, þ.e. þú þarft að tryggja að það kvikni ekki í blöndunni áður en neistinn kemur...

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 22:27 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
það er a.m.k. rétt að maður nær ekki jafnmiklu afli með því að nota bensín með lága oktantölu eins og ef maður hefur úr að spila bensíni með háa oktantölu. Ef maður nær að láta bíl skila 1000hö með 95okt bensíni, þá ætti að vera nokkuð auðvelt að ná meiru útúr honum með því að nota hærri oktantölu og stilla útfrá því.

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 23:15 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ingvar þú ert ekki alveg að skilja enn við höldum áfram því að þetta er góð umræða og margir hafa rangar hugmyndir um kveikjuflýtingu

ef vélin nær að komast í segjum 25gráður flýtingu þar sem að hún býr til hámarks afl við þennan X snúning og mikið flæði, þá mun hærri oktan og meiri flýting ekki gera baun í bala.

það er atriðið sem heitir knock limited,
það þýðir að ef þú nærð ekki MBT (minimum best timing) með það bensín sem þú ert að nota og þá vélar uppsetningu sem þú ert að runna, þ.e knock er að halda þér fjarri réttu flýtingunni(þessi flýting breytist EKKI hún það er bara til ein rétt við þetta mikið flæði og snúning) þá og eingöngu þá mun hærri oktan bensín leyfa þér að nálgast réttu flýtinguna það er enginn gróði að vera við MBT og fara lengra sama hvaða bensín maður er að nota.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 08. Jul 2008 23:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Annað.

það er til bensín sem hefur aukið súrefnis innihald, það bensín gefur klárlega aukið power. því að þá er súrefni að koma inn með spíssunum ekki í gegnum síunna, það er sumt race bensín

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 03:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Posts: 5709
Location: Reykjavík
Smá meira mumbó jumbó í þessa umræðu..:)

http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=14256.0

Quote:
Well skv evrópustaðli þá er 95RON = 91 octan eftir ameríkustaðlinum.
98RON á að vera 93 AKI.


Quote:
Kanarnir nota í lang flestum tilfellum PON ( (RON+MON)/2 ), það sem við sjáum á dælunum okkar er RON, s.s. 95, 98 og 99 (markaðsfræðis bull, meira er betra).
Til að reikna út hvað okkar bensín er í PON gerum við eftirfarandi..... Munurinn á RON (research octane number) og MON (motor octane number) eru 9-10 octane stig. En við viljum vita PON (pump octane number) sem er bara meðaltal RON og MON eins og áður kom fram.
við tökum 9.5/2= 4.75, 98RON - 4.75 = 93.25PON o.s.frv.


Svo ef ég skil þetta rétt, er kaninn að gefa upp allt aðrar octan tölur en við.. Bara svona ef einhver skildi villast inn á spjallborð í landi stóru stuðarana :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 08:21 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
gstuning wrote:
Ingvar þú ert ekki alveg að skilja enn við höldum áfram því að þetta er góð umræða og margir hafa rangar hugmyndir um kveikjuflýtingu

ef vélin nær að komast í segjum 25gráður flýtingu þar sem að hún býr til hámarks afl við þennan X snúning og mikið flæði, þá mun hærri oktan og meiri flýting ekki gera baun í bala.

það er atriðið sem heitir knock limited,
það þýðir að ef þú nærð ekki MBT (minimum best timing) með það bensín sem þú ert að nota og þá vélar uppsetningu sem þú ert að runna, þ.e knock er að halda þér fjarri réttu flýtingunni(þessi flýting breytist EKKI hún það er bara til ein rétt við þetta mikið flæði og snúning) þá og eingöngu þá mun hærri oktan bensín leyfa þér að nálgast réttu flýtinguna það er enginn gróði að vera við MBT og fara lengra sama hvaða bensín maður er að nota.


jújú, ég er alveg að skilja þetta - það þarf engan ofur heila til að skilja svona hluti. Ég er bara að fiska eftir þinni útskýringu á því afhverju menn eru þá yfirleitt að eltast við háoktan bensín. Ef við snúum okkur aftur að BMW GS mótorhjólinu þá er það að skila meira afli ef það er tekið bensín með hærri oktantölu, closed loop knock eða hvað það var kallað.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 15:57 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
ValliFudd wrote:
Smá meira mumbó jumbó í þessa umræðu..:)

http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=14256.0

Quote:
Well skv evrópustaðli þá er 95RON = 91 octan eftir ameríkustaðlinum.
98RON á að vera 93 AKI.




humm ok, sniðugt að vita, er einmitt að íhuga að panta tölvu í einn amerískan og þá er boðið uppá 91 tune og svo 93 tune


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 18:18 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 16. Apr 2007 00:27
Posts: 6772
hvernig er það, fer ekki 98okt bensín betur með mótoranna en 95okt ?

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 18:22 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
nei, lestu þráðin upp á nýtt,

eins og ég skildi upprunalegu uumræðuna var spurningin sú hvort þú græddir eitthvað á því að nota bensín með hærra octangildi á venjulega bílvél, svarið er nei, og bara nei

jú þú myndir græða eitthvað af afli á að breyta kveikjutíma og flr í gegnum map og keyra svo á öðru bensíni,

en hinn sauðsvarti venjulegi bíleigandi veit ekki einusinni hvað kveikjutími er, og er ekki að eiga við hann, og því er svarið við því hvort þú græðir eitthvað á því að setja 98+ á venjulega bílin þinn NEI

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 09. Jul 2008 18:38 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
íbbi_ wrote:
nei, lestu þráðin upp á nýtt,

eins og ég skildi upprunalegu uumræðuna var spurningin sú hvort þú græddir eitthvað á því að nota bensín með hærra octangildi á venjulega bílvél, svarið er nei, og bara nei

jú þú myndir græða eitthvað af afli á að breyta kveikjutíma og flr í gegnum map og keyra svo á öðru bensíni,

en hinn sauðsvarti venjulegi bíleigandi veit ekki einusinni hvað kveikjutími er, og er ekki að eiga við hann, og því er svarið við því hvort þú græðir eitthvað á því að setja 98+ á venjulega bílin þinn NEI


Það eru reyndar ýmis auka hreinsiefni sem eru í háoktan bensíni þannig að það má vel vera að ávinningurinn sé einhver - t.d. hreinni vél. Það kemur hinsvegar oktantölunni þannig sé ekkert við, heldur bara því þegar keypt er premium vara.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: .
PostPosted: Thu 10. Jul 2008 01:00 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 10. Jul 2006 00:22
Posts: 26
eyðir bíllinn minna eldsneyti á hærri oktantölu eða á það bara við þegar keyft er lakara bensín en vélin er gerð fyrir og maður kemst styttra á tanknum


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: .
PostPosted: Thu 10. Jul 2008 01:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
hjá wrote:
eyðir bíllinn minna eldsneyti á hærri oktantölu eða á það bara við þegar keyft er lakara bensín en vélin er gerð fyrir og maður kemst styttra á tanknum


hvorugt eyðir meira bensíni.
það er alltaf placebo effect þegar fólk skiptir á milli bensíns.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: .
PostPosted: Thu 10. Jul 2008 01:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
gstuning wrote:
hjá wrote:
eyðir bíllinn minna eldsneyti á hærri oktantölu eða á það bara við þegar keyft er lakara bensín en vélin er gerð fyrir og maður kemst styttra á tanknum


hvorugt eyðir meira bensíni.
það er alltaf placebo effect þegar fólk skiptir á milli bensíns.


Ertu að segja að But-o-meterinn ljúgi? :lol:

_________________
Image
E36 M3GTtt


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 50 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group