Sælir,
Vona að þetta megi vera í þessum dálk.
Ég er að koma heim í nokkra daga í næstu viku og er í vandræðum með að útvega mér bíl.
Ég er fátækur námsmaður og er að reyna að forðast það að leigja bíl á bílaleigunum og datt því í hug að athuga hvort einhver hér gæti hjálpað.
Þetta væri frá 10. Júlí í 10-20 daga (ekki víst hvenær ég flýg aftur út).
Vantar bíl með 5 sætum og ágætt skott, helst 4 dyra og frekar eyðslu grannan. Sem ódýrast
Ég er með nettan bensínfót, fer vel með bíla og hef verið tjónlaus seinustu 8 ár.
Hef ekki velt fyrir mér tryggingum eða öðru en líklegast best að bíllinn sé mjög ódýr eða í kaskó.
Látið mig vita ef þið eigið eitthvað og hvað þið mynduð rukka.