Spiderman wrote:
Þvílíka bullið, hvet menn til þess að skoða fréttablaðið í dag. Þar er fjallað um úttekt fjármálaráðuneytisins á bensínverði, skv. henni hefur framlegð olíufélaganna lækkað mikið.
Þetta er svona svipað dæmi og að kenna Avant um að lánið á 3 milljón króna RR sé orðið 6 milljónir.
Frá því í fyrrahaust hefur innkaupsverð á hvern lítra af bensíni og dísilolíu hækkað mjög. Í október 2007 var reiknað innkaupsverð á bensíni 33,63 kr/l og 38,22 kr/l á dísilolíu. Fram til apríl í ár hefur innkaupsverðið
á bensíni hækkað um næstum 20 kr á lítra, sem er 59%. Innkaupsverð á dísilolíu hefur hækkað um nærri 30 kr á lítra, um 76%. Á sama tíma hefur útsöluverð á bensíni hækkað um 17% en á dísilolíu um 25%. Hlutur olíufélaganna í endanlegu verði hefur því dregist saman að undanförnu.
Framlegð olíufélaganna (endanlegt söluverð að frádregnum sköttum og vörugjaldi ásamt reiknuðu innkaupsverði, sem hlutfall af innkaupsverði) af dísilolíu var yfir 60% í október í fyrra en er nú 29%. Framlegð í bensínsölu var 78% en er nú 46%. Olíufélögin virðast þannig ekki hafa fært alla hækkun innkaupsverðsins yfir á neytendur þótt mjög hafi verið kvartað yfir verðinu. Mismunurinn er meiri á dísilolíu en bensíni að þessu leyti.
Edit:
http://www.fjarmalaraduneyti.is/media/vefrit/Vefrit_fjarmalaraduneytisins_19._juni_2008.pdf