Fyrir mörgum árum síðan fór ég niður í minn banka og lagði mín spil á borðið, var með húsnæðislán og fleira hjá bankanum og fannst þeir þéna nóg á mér sem viðskiptavini. Sagði hreint út að frá og með þeim degi myndi ég ekki borga nein ársgjöld, hvort sem væri greiðsluþjónusta eða Debet/Kredit-kort. Sýndi þeim tilboð frá "öðrum" banka þar sem fallið var frá gjöldum og hagstæðari vextir voru í boði, það varð til þess að ég fékk það sem ég fór fram á og enn betri útláns- og innlánsvexti en fyrir.
Bankarnir "þurfa" viðskiptavini og eru tilbúnir til að gera hitt og þetta til að halda í góða kúnna (fólk með lán og yfirdrátt). Fólk sem er að dæla peningum í þessi ársgjöld....er annað hvort algjörlega skuldlaust eða á akkúrat engan pening. Ef þú hins vegar átt skrilljónir eða skuldar álíka mikið....þá vantar bara meira "bein í nefið"

farðu í bankann með tilboð frá annarri bankastofnun, það virkar yfirleitt nokkuð vel.