Kíkti pínu ofaní húddið á þessum áðan.. svona fyrst að þetta er orðinn dailydriver!
Svissaði 2 vatnsslöngum.. miðstöðin var ekki að blása heitu lofti áður en núna blæs hún svaka fínu heitu lofti
Svo mixaði ég vatnslásinn aðeins hjá mér til að reyna fá betri kælingur þar sem að bíllinn átti það til að hita sig stundum... sjáum til hvort að þetta virkar.
Annars er bíllinn bara svona nokkuð solid í augnablikinu, þarf að láta Gstuning kíkja aðeins á mappið og reyna fínstilla smá og svo skoða eitthvað bank sem virðist koma úr fjöðruninni að framan. Þá ætti hann að vera nokkuð góður.