by srr » Tue 10. Jun 2008 09:18
Jæja, smá innlegg í belg.
Bíllinn fékk fyrst að sjá sólarljós núna á sunnudagskvöldið, þegar hann kom út úr skúrnum í fyrsta sinn síðan í ágúst þegar hann var keyrður þangað inn með M20B20.
Ég og Gunni bróðir drógum hann heim til Stefáns þar sem Sævar snillingur tók hann í pústsmíði.
Pústið fór reyndar ekki undir fyrr en í gærkvöldi en það er BARA flott hvernig Sævar sauð þetta.
Það var notað oem nýjan E28 535i aftasta kút og báðar greinar niður frá eldgreinum.
Svo 2" opið beint þar á milli tengt saman í H til að tengja 3+3cyl hljóðin saman.
Takk æðislega Sævar!
Á meðan Sævar var að dunda sér undir bílnum með pústið, þá snyrti ég aðeins í húddinu og náði meðal annars að færa ECUið inn í hanskahólfið.
Ég setti svo í gang þegar pústið var klárt.....BARA skemmtilegt hljóð
Núna byrjar smádútlið sem þarf að klára fram að brottför á föstudaginn norður......
Myndir frá pústsmíðum og síðustu dögum koma ekki strax þar sem þær eru fastar í símanum mínum
Hérna er samt ein sem Gunni tók í nótt kl 1 þegar við ákváðum að segja þetta gott....

Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d