Vargur wrote:
Lánafyrirtækin hreinlega tróðu lánum með háu veðsetningahlutfalli upp á fólk
Það var auðvelt að komast í fjármagn og vextir voru hagstæðir, auðvitað buðu lánafyrirtækin þetta áfram til fólks. Ef heimsmarkaðsverð á eplum er hagstætt þá viljum við líka fá þau ódýr í búðunum. Kaupmenn eru samt ekkert að troða eplum upp á okkur....
íbbi_ wrote:
þú skilar ekki lyklum svo auðveldlega af bíl, en sumir sem fengu kannski 4m kr hækkun á einu bílaláni fannst það kannski hagstæðara
Menn fengu nú ekki þessa hækkun svona allt í einu þeir tóku ákvörðun um það að taka áhættu, þeir sem þetta gerðu hlýtur að hafa fundist það fýsilegur kostur. Mönnum þótti það sniðugt að taka bílalán til frekar skamms tíma í erlendri mynt, óverðtryggt á hagstæðum vöxtum og taka gjaldeyrisáhættu, gengisvísitalan var öllum ljós. Menn standa svo bara og falla með þeim ákvörðunum sem þeir taka, það á við um alla. Ég myndi kalla þetta mjög gott dæmi um áhættusækna fjármögnun! Ef þetta hefði tekist og þegar þetta var í lagi þá vöru sömu aðilar örugglega mjög ánægðir, gott og gilt....
kannski gengur þetta til baka, kannski var þetta allt útpælt hjá þeim sem tóku þessi lán, hver veit.
Quote:
en menn hafa varið vægast sagt illa út úr því að skila inn lyklunum
Þegar menn verða svangir þá gera þeir bara það sem þarf að gera. Það er fólk þarna úti sem situr uppi með jafnvel tvo bíla sem það getur ekki losað sig við og ná ekki endum saman og eiga varla fyrir mat.