Sælir,
svona fyrst maður er alltaf að reyna að vera aktívari í þessari umræðu hérna, ákvað ég að skella inn smá þræði um fínasta gripinn minn.
Umrættur gripur er ættaður frá því stórmerkilega landi U S and A, ef ég man rétt er hann þó fæddur í Kanada og var gefið þetta stórmerkilega nafn Dodge Magnum.
Ég hef nú ekkert fiktað í vélinni á honum, því jú þetta er nú bara cruizer útgáfan, en ég lappaði aðeins upp á útlitið og læt bara myndirnar um að segja þá sögu. Vara ykkur þó við að ég er enginn myndasmiður og þessi litur er töluvert betri með eigin augum.
Svona leit hann út þegar ég keypti hann
hérna er hann svo kominn heim og fékk hann aðeins betri skó líka
svo var honum aðeins skeint og urðu ljósin smekklegri fyrir vikið
og fyrst maður fór að skeina honum, var alveg upplagt að snýta honum líka
horið var svo mikið að ég þurfti að snýta honum oft og mörgum sinnum til að losna við það allt
svo fór hann í augnaðgerð líka
og svo nokkrar svona til að gefa þessu heilstæðari svip
hvernig lýst ykkur á?
kv,
Höfuðpaurinn
ps. rétt er að benda á að gripurinn er falur, pm for info.