bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 24. Jun 2025 16:31

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 8  Next
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:01 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 09. Oct 2007 20:23
Posts: 559
Location: Halfpriceland
..


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
moggabloggari wrote:
Ég á ekki orð til að lýsa undrun minni yfir úrræðaleysi Þórunnar Sveinbjarnardóttur og lögreglustjóra þess svæðis þar sem ísbjörninn var felldur í dag. Það er einmitt á svona stundum þar sem reynir á hversu snjöll viðkomandi yfirvöld eru í að setja sér markmið og ná þeim. Þórunn vísar í áætlanaskort, dæmigerð tískubóla nútíma "stjórnamálamanns" - allt þarf að gera samkvæmt einhverri áætlun eða henda málum fyrir nefndir. Af hverju gat konan ekki sett sér það markmið að bjarga þessum ísbirni og hætta ekki fyrir en það mál var í höfn. Jafn ömurlegt þykir mér að horfa á þá menn sem stillt hafa sér upp við bjarnarhræið og grobba sig af því að hafa fellt það.

Dýravernd á Íslandi er allt að því engin og dýraverndunarlögum er illa fylgt eftir um það eru mörg dæmi.

Í ríkisstjórninni er heill dýralæknir því miður ráðherra sem aldrei á sínum ferli sem "stjórnmálamaður" hefur nokkurn tíma beitt sér fyrir neinu sem við kemur dýravernd, það er hann Árni Matt.

Ég segi, sem margir aðrir, ég skammast mín fyrir að vera Íslendingur á svona stundum.

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:12 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Þetta eru engin gleðitíðndi, en ætli tóninn í þessari umræðu væri ekki öðruvísi hefði hann drepið eitthvern. Svo er þetta langt frá því að vera einsdæmi, afhverju ekki að hafa öll nauðsynleg verkfæri sem þarf til að hemja svona dýr til staðar?

Íslendingar , pfff...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:14 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.

Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.

Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.

Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.

Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
hefði verið hægt að komast hjá því að drepa hann ...

Hugsa að hann hafi verð drepinn til að láta mynda sig á þessari mynd

Image

gaurinn í camo jakkanum alveg með badboy svipinn á hreinu

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:38 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Það sást alveg langar leiðir að það hlakkaði alveg í þessum veiðimönnum -

hvers vegna svona marga?

Er ekki bara einn nógu góður í þetta?

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Kristjan wrote:
Það sást alveg langar leiðir að það hlakkaði alveg í þessum veiðimönnum -

hvers vegna svona marga?

Er ekki bara einn nógu góður í þetta?


Auðvitað, er þetta ekki bara sport hjá þeim?


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:48 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Er ekki betra að hafa fleiri en einn ef svo ólíklega vildi til að vopnið myndi klikka? Líka ef það þyrfti að fara að elta dýrið, þá er betra að hafa nokkra vopnaða.

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:54 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
basten wrote:
Það er merkilegt hvað margir eru búnir að tjá sig um þetta mál á hinum ýmsu síðum og flestir virðast ekki hafa hugsað málið til enda og talið að dýrið hafi verið skotið bara upp á fjörið.

Fyrir það fyrsta þá er hvítabjörninn eitt það grimmasta rándýr sem lifir villt á jörðinni í dag. Þar sem dýrið var skotið var stutt í þéttbýliskjarna eins og Blönduós, Skagaströnd og Sauðárkrók. Hvað ef lögreglan hefði týnt dýrinu þarna og það horfið inn í þokuna? Þá væri enn verið að leita að dýrinu og fólk alveg brjálað yfir því að það hafi ekki verið skotið á meðan færi gafst. Hugsa að álit fólks á lögreglunni væri ekki uppá marga fiska ef svo dýrið hefði skyndilega birst á einhverjum þessara þéttbýliskjarna eða bara á bóndabæ og ráðist þar á mannfólk og drepið það.

Margir tala um að ekkert mál hafi verið að deyfa dýrið. Fyrir það fyrsta þá var ekki tiltæk deyfibyssa í nágrenninu og ekki víst að það væri tími til þess að hinkra eftir deyfibyssu í 2 klukkutíma þar sem björninn er fljótur yfir ef hann fer af stað, hvað þá ef hann týnist í þokunni. Hvað ætti svo að gera við dýrið þegar búið væri að svæfa það? Hvar er búr fyrir svona skepnu? Hvað ef dýrið vaknar þegar búið er að svæfa það? Hvert á að flytja dýrið? Hvað á svo að gera við það? Það er heldur ekki sama hvert farið er með dýrið og því sleppt.

Í Noregi eru ísbirnir skotnir ef þeir sjást í landi. Á Svalbarða, þar sem ísbirnir eru landlægir, eru þeir hræddir á brott ef þeir koma nálægt byggð. Ef sami björn kemur aftur nálægt byggð eftir að hafa verið rekinn á brott þá er hann drepinn.

Ísbirnir eru virkilega falleg dýr en þeir eru bara stórhættulegir og mjög grimmir. Ekki vildi ég vita af einum slíkum á vappi nálægt mínum heimkynnum.


NÁKVÆMLEGA.

Þetta er nákvæmlega það sem ég vil meina. Ég held að þeir sem eru að segja að það hafi ekki verið nauðsyn að skjóta hann hafi ekki hugsað þetta til enda.

Þeir sem vilja meina að það hafi ekki þurft að skjóta hann, þeir mættu svara þessum spurningum með úrræðum sem voru til taks í dag áður en farið er að tala um hvað þetta hafi verið mikill óþarfi.

Auðvitað er leiðinlegt að þurfa að aflífa svona dýr, en ég er ekki tilbúinn til að eyða milljónum í viðbragðsáætlun og viðbrögð við svona löguðu sem gerist kannski á hvað, 100 ára fresti?

Peningum skattborgarana er betur varið með að bíta í það súra og gera eins og var gert í dag í stað þess að hafa tilbúið allt og senda þyrlu norður með manni og deyfilyfjum, búri, flytja hann, fóðra hann bla bla bla bla.

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 18:55 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
basten wrote:
Er ekki betra að hafa fleiri en einn ef svo ólíklega vildi til að vopnið myndi klikka? Líka ef það þyrfti að fara að elta dýrið, þá er betra að hafa nokkra vopnaða.


Word!

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:00 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Er allir hérna orðnir kellingar... hætti að hugsa rökrétt og ofur-viðkvæmir með engin úrræði eða úrræði sem eru ekki í boði?


"Eigum við að gera þetta eða þetta. Nei, ég vil gera þetta. Já en það er ekki hægt, það er bara hægt að gera annaðhvort af þessu. Nei, ég sætti mig ekki við það, ég vil gera eitthvað annað. Já en það er bara ekki hægt. Ég vil það samt. Komdu þá með tillögu um hvað á að gera sem hægt er að gera. Ég veit það ekki, ég veit bara að ég vil ekki gera annaðhvort af þessu."


:lol:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:07 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Hætta þessu kerlingarvæli, þetta var leiðin sem var valin í þetta skipti og það búið og gert.......


Egilstaðir og Skagafjörður eru ekki beint í 10min fjarlægð frá hvor öðru og hefði tekið alltof langan tíma að fá deyfibyssuna á staðinn. Spurning hvort að kvikindið hefði ekki bara skelt sér í matartíma á krókinn eða eitthvað á meðan.

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:07 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Kristjan wrote:
Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.


Úrræði :wink:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 03. Jun 2008 19:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
saemi wrote:
Kristjan wrote:
Það er samt ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er dýr í útrýmingarhættu. Það finnst mér allaveganna.


Úrræði :wink:


Ekkert mál samt að skella honum í frystigám og láta stoppa hann upp, það er örugglega ókeypis :wink:

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 109 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5 ... 8  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 15 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group