Jæja,.....ýmislegt búið að gerast undanfarna daga.
Ég lenti í hrakningum með vökvastýrismálin. Ekki var hægt að nota M20 vökvast.dæluna sem ég var með í bílnum fyrir, svo ég varð að nota M30 dælu.
Sú sem var á M30 mótornum mínum sem er ofan í, var úr E32 bíl sem hefur greinilega verið með hleðslujafnara, þannig að á henni voru þrír inn/útgangar.
Einn þeas fyrir LAD hleðslujafnarakerfið.
Það var því ekki hægt að nota þá dælu.
Ég átti til E24/E28 M30 dælu líka....en til að geta notað hana hefði ég þurft mótorbracketin af mótornum sem hún kom, sem ég á ekki til :S
Staðan var þá sú að ég átti þrjár dælur sem ég gat ekki notað

... og þurfti því að finna mér réttu dæluna, semsagt sú sem er úr E32 M30 nema án hleðslujafnarakerfis, þá bara með einn inn- og einn útgang.
Hana fann ég fyrir heppni í Vöku í dag, þar sem einn E32 730i var að birtast í rif þar.
Tók hana glaður og skellti henni í hjá mér áðan
Hún er þeas tengd og virkar.
Einnig kláraði ég að tengja vacuum úr intake manifoldinu og í brake boosterinn.
Núna er eftir:
PÚST
Færa tölvu inn í hanskahólf og snyrta víramálin.
Ég á nú þegar fremstu rörin af pústinu og aftasta kútinn nýjan (oem 535i E28 setup þeas), en vantar að láta smíða á milli þeirra.
Efnið í það kaupi ég á morgun og það er góður náungi sem ætlar að smíða þetta fyrir mig
Erum við að tala um að þetta sé að SMELLA SAMAN fyrir BÍLADAGA ????
