Svona var hann þegar ég fékk hann. Ekinn um 105.000 kílómetra og nokkuð heillegur.
Það fyrsta sem ég gerði var að surta nýrun. Eftir það ákvað ég að fá mér lip spoiler sem ég verslaði málaðan af eBay, ekkert smá mikil breyting, þessi litli listi!
Hérna eru myndir af bílnum í dag.
Eins og má sjá á myndunum er ég búinn að versla mér glær stefnuljós allan hringinn og það er ekkert smá mikil breyting. Síðan er maður búinn að vera í endalausu viðhaldi, skipta út fóðringum, nýjar bremsur og nýir demparar og mikið fleira. Það eina sem þarf að gera til að þessi bíll verði golden er að versla nýtt dekk svo ég þurfi ekki að vera með tvær tegundir af felgum.
Mér þætti gaman að heyra ykkar álit á bílnum og hvað mætti gera næst við hann.
Kv, Steini.


