Schulii wrote:
Live2cruize er fyrir allar bílategundir! Bmwkraftur er fyrir eina bílategund! Væri það ekki frekar slappt ef síða fyrir alla bíla væri ekki með töluvert fleiri meðlimi og umræður en hin?
reynslan sem þú talar svo oft um hérna, segir það að það er talað um MIKLU meira enn bara Eina bíltegund hér sem væri þá BMW, enn mestmegnis auðvitað BMW. skil hvað þú ert að fara, enn það bara er ekki svoleiðis.
Schulii wrote:
Já, fýlugjarnir egó-istar eru farnir að skýla sér fyrir gagnrýni annarra spjallverja með því að bera fyrir sig að lítil elíta sé búin að setja sig á stall og miðstýri spjallinu
ég er ekki egóisti trú nú samt á sjálfan mig í hinum ýmsu hlutum.... á það til að fara í fýlu samt ekki í gegnum BMWkraft, eða nokkuð annaðspjall.., Ég hef aldrei lent upp á kannt eða rifist við neinn hérna, mér semur ágætlega við flesta.
Schulii wrote:
Jú, það eru spjallverjar hérna sem hafa verið hérna í 6 ár og verið mjög virkir allan tímann. Þeir eru margir hverjir mjög góðir pennar og hafa orðið reynslu í skrifum og athugasemdum. Þeim þykir eflaust vænt um spjallið og hafa vissulega skoðanir á því sem hér fer fram, væri annað ekki óeðlilegt?
Auðvitað er það eðlilegt að þykja vænt um það sem að þú hefur "starfað við / stundað" í 6 ár, enn þegar að fólk talar í "Off-Topic umræður" þá finnst mér að það eigi ekki að skíta yfir fólk sem er að reyna að koma með smá glens og grín, hversu lélegt það grín er. jú annað væri eflaust óeðlilegt, enn samt þarf að kunna sig, þessir "eldri, reyndari" spjallverjar verða oft að líta í eigin barm. eflaust hægt að finna endalaust af alveg eins þráðum sem þeir byrjuðu og eða sögðu eitthvað svipað.
Schulii wrote:
Að reyna að kasta á rýrð á þá meðlimi, sem hafa unnið mikið óeigingjarnt starf fyrir þetta spjall, þykir mér segja töluvert meira um höfunda athugasemdanna en þá sem athugasemdirnar eiga að beinast að. Mér þykir ekkert að því að gefa sérstakan gaum þeim athugasemdum sem rótgrónir spjallverjar koma með varðandi hegðun spjallverja og uppbyggingu spjallsins sjálfs því hjá þeim liggur reynslan sem hefur mótað þessu síðu einna mest. Og greinilega virðist eitthvað hafa tekist vel því sífellt fleiri meðlimir taka þátt í umræðum og starfseminni sem hér fer fram.
Hvert er þetta óeigingjarna starf ? að skrifa ? ef að það á að skammast endalaust yfir einhverjum skrifum spjallverja þá þarf að fara að setja ákveðnar reglur, fastar reglur sem að lýsa nákvæmlega hvernig spjallverjar ættu að haga sér og skrifum sínum enn ekki drulla yfir einstaka pósta og leyfa öðrum að komast upp með skrifin, eitt gildri um alla.
Schulii wrote:
Það er ekki bannað eða bjánalegt að bera smá virðingu fyrir þeim sem eru "eldri" og hafa reynslu.
Það er ekkert sem segir að það eigi að virða þann mann sem hefur 6000 skrifuð innlegg. heldur ber þér skylda sem dyggur samfélagsþegn, manneskja og nágranni að bera virðingu fyrir náunganum. ég virði jón með 5000 innleg ekkert meira enn, Hallgrím með 51 .... og ætti hver og einn hérna ekki heldur að gera það
Schulii wrote:
Ég tjái mig ekki oft hérna en þessu langaði mig að koma á framfæri.
Þarf ekki að hringja á vælubílinn handa mér, ég pantaði hann sjálfiur

Æjjj,,, hringjum bara samt í hann, þarf á honum að halda!
