srr wrote:
Stanky wrote:
saemi wrote:
Ég segi fyrir mitt leyti, off-topic eða ekki off-topic, þá kemur þetta innlegg ekkert við neinu sem tengist bílum, bílameðlimum eða bara einhverju yfir höfuð. Hver er tilgangurinn með svona rusli hér á þessu spjalli?
Til hvers haldið þið að off-topic sé? Til þess að setja eins mikið bull þangað inn og hægt er?
Off-topic var í upphafi ætlað málefnum sem eiga ekki heima inn í öðrum dálkum á spjallinu. Það þýðir ekki að það eigi að fylla þennan dálk með bulli og vitleysu.
Off-topic þýðir EKKI: Gjörið svo vel að pósthórast og bulla eins og þið viljið á þessu svæði.
Off-topic þýðir: Hér skal setja inn innlegg sem tengjast spjallinu og því sem er að gerast þar, en passar ekki inn í aðra dálka. Eða, t.d. þangað skal setja inn nýja þræði sem spinnast út frá öðrum (til að skemma ekki upphaflegu þræðina).
Eru sumir ekki að ná því að svona skrif eru ekki velkomin á Bmwkraftur.is
Við höfum ekkert við svona bull að gera!
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=29469Lýttu í þinn eigin barm Sæmi. No hard feelings.

Sé ekki betur en að þráðurinn hans Sæma tengist bílalánum.... mjög viðurkennt bílatengt málefni

What? Vegna þess að hann segir að lán á BÍL hafi hækkað?
Okei. Maxel, breyttu fyrirsögninni í "Skiptilykill ----- ró ---- ÉG" Þá er þetta bílatengt, ekki satt?
Gjörið svo vel að hætta að verja þessa fucking "Elítu" sem hefur myndast hér innan kraftsins.
Það hafa ALLIR póstað einhverju kjaftæði sem kemur þessu blessaða spjallborði ekki við. En það er algjör óþarfi að vera röfla og væla um einhverja nokkra meðlimi sem eru nýir og segja að þeir séu að "skemma spjallborðið".
Fyrir mér kemur efnahagslífið EKKERT þessu spjallborði við, en mér finnst hinsvegar áhugavert að lesa það.
Í þessu tilviki reyndi Maxel að vera fyndinn en það tókst því miður ekki, eins og svo oft áður.
Ég held að þeir sem telji sig vera í þessari "elítu" ættu að fara passa sig að skjóta ekki af sér löppina.
Algjör óþarfi að beina spjótum sínum á einstaka meðlimi.