Ætla að hend hér inn myndunum sem ég er með í söluþræðinum
Eins og sjá má á myndunum þá er ég kominn á 17" og 40 profil og verð ég að segj að þetta er bara mjög nice, þarf reyndar spacera en það er allt í vinnslu. Bíllinn er bara miklu skemmtilegri svona í alla staði.
Það sem helst er að gerast í viðhaldsmálum í þessu bíl er að ég tók loksins filmurnar úr aftur rúðunum og finnst mér hann miklu fallegri þannig. Einnig er ég að skipta út slöngum í kælikerfinu og vacum við ventlalok og soggrein. Skipt var líka um ventlalokspakkningu og soggreinar pakkningu.
Var að fá plötuna fyrir COP mod´ið úr smíði í dag ( vonandi myndir fljótlega ). Þannig að þessi bíll er bara að verða eigulegri