Sælir.. er með smá vandamál hérna, þannig er mál með vexti að bíllinn hjá mér virkar bara í R og ef ég set í D 1 2 eða 3 að þá lætur hann alveg eins og hann sé bara í neutral (kemur ekkert svona högg eða smellur þegar ég set hann fyrir neðan N) það er nýbúið að skipta um olíu á gírkassanum og síu.
Fyrst var hann bara í einhverju skrítnu limp mode (sem var þannig að hann var bara fastur í einu þrepi) svo þurfti ég að fara aðeins á bílnum og núna virkar bara ekkert áfram.. hvað mynduð þið snillingar halda að væri að? (Mældi reyndar olíuna á gírkassanum og það er of mikið á honum að mér sýnist. er ekki annars rétt mæling að hafa hann í gangi og í park og mæla þá?)
Með von um skjót svör, Hannes.





