Hvert erum við komin eiginlega.......
Höfum við verið að forgangsraða hlutum vitlaust undanfarin ár???
Eru allir sem eru að borga afborganir af 4.7 milljón króna bílunum sínum í dag (sem lánið er komið upp í 6.3 í) að fá kikk út úr því að láta þá standa fyrir utan bílskúrinn sinn á Íslandi í dag. En sitja heima í rigningu og lágskýjuðu og hlusta á viðskiptaspekúlanta í hádegisviðtölunum tala um lækkandi gengi í FL-group og stöðu bjarnabófa gegn íslensku krónunni?
Það er svo gaman að vera úti í Evrópu í 25°C hita, heiðskýrt og sól og finna lyktina af of ríkri blöndu í pittinum á Nurburgring í góðra vina hóp..... getum við ekkert gert svoleiðis meir?
Eigum við ekki bara öll að láta lýsa okkur gjalþrota og fá okkur far með Pólverjunum aftur til Evrópu og finna okkur vinnu þar.
Kaupa bjórinn á 300 kall og út að borða fyrir 700 kall!
Vinna eins og Danir og fá borgað eins og Íslendingar fyrir gengisfall!!!
Hvert fór ljúfa lífið okkar.... hvert erum við komin?
Er einhver framtíð á okkar guðs-volaða landi,... Íslandinu góða?
Hvað segja stóru kallarnir í dag... þessir sem eru með stóru lánin og veðköllin frá bankanum? Er Range Rover það mest hallærislega í dag... bíll deyjandi stéttar?
Ég veit allavega um vel múraðan mann í dag sem er að fá sér aðra (betri) tegund... hættur að láta sjá sig á RR... vill ekki láta stimpla sig með hinum bröskurunum sem eru WANNABEES!!!!!

