Svezel wrote:
Mér þótti þetta boddy mjög ljótt þar til fyrir stuttu að ég sá dökkbrúnan 745 (held a.m.k. að það hafi verið 745) á djúpum felgum aka á Sæbrautinni. Ég starði á á bílinn svo lengi að ökumaðurinn hélt að ég væri að espa hann upp í spyrnu svo hann botnaði í burtu.
Þetta boddy verður alveg svakalega flott og vígalegt á réttum felgum, eins og t.d. þessi bíll
NEINEI þetta er 1981 735iA og var án vafa fyrir 10 árum einn af fallegustu E23 bílum landsins.......
ps:: Átti sjálfur á þessum tíma 728iA 1982 og tók allan í gegn
Heilsprautaði ,,,,custombuild chip,, opið púst ofl..... flottur bíll GP-605
Sv.H
Ég átti þarna 745 bílinn blá og heimsótti þennan gamla með brúna 735 bílinn stundum, bíllinn var algjörlega eins og nýr, alveg sorglegt að hann skyldi lenda í höndum á 18 ára vitleysingi þegar sá gamli seldi hann