by JOGA » Sat 01. Mar 2008 19:31
einarsss wrote:65 er nú bara allt í lagi ... 59-60 er auðvitað betra en mér finnst eins og 65 sé bara meðal gengi dollarans í nokkur ár ... hækkar og lækkar á víxl... amk er ég sáttur við hann í dag.
En þetta dettur aftur niður... bara spurning hvort það verði fyrir sumarið eða ekki
Það þarf nú ekkert að vera
Það eru nú ekkert voðalega fallegar sögurnar sem maður les hérna í UK í augnablikinu um Ísland og íslenska fjármálamarkaðinn og það gæti litað gengi krónunnar á árinu. Seðlabankinn lækkar hugsanlega vexti á árinu til að sporna við ef hægist um of í hagkerfinu => lægra gengi krónu.
Svo mér þykir ekki líklegt að gengi dollars lækki mikið á árinu ekki nema allt fari í bál og brand í US of A (sem gæti svo sem gerst miðað við fréttir seinustu mánaða).
Edit: plús fleirri þættir að sjálfsögðu...
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir