Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Eggert » Sat 26. Apr 2008 11:25

E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby JIS » Sat 26. Apr 2008 13:06

..
JIS
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 81
Joined: Sat 23. Feb 2008 22:45

Postby fart » Sun 27. Apr 2008 07:11

Ég var að lesa yfirlýsinguna frá Ágústi Fylkissyni. Fyrir mér liggur það nokkuð ljóst það er ekki mikil meining í þessar afsökunarbón. Þetta byrjar s.s. ágætlega en svo fer hann alveg af sporinu. Held að það hefði verið sterkur leikur að láta einhvern fyrir utan hópinn lesa í gegnum þetta áður en hann sendi þetta frá sér.

Gæjinn basically segir að hann hafi lamið lögguna að því að hún hafi neitað að skila kylfunni (eða vopninu sem hann mætti með á svæðið) Maður getur ekki annað en hlegið að svona bulli.

Svo heldur hann áfram að moka sig lengra niður í bullið, hreint út sagt ótrúleg yfirlýsing. Kanski er ég bara orðinn of neikvæður í garð þeirra bílstjóra sem hafa verið í forsvarinu, kanski er ég að lesa þetta með neikvæðu gleraugunum.

Mikið hefði nú verið gáfulegra að segja bara stutt og laggott "ég biðst afsökunar á því þegar ég missti stjórn á mér og réðst á lögreglumann. Ég hef verið undir miklu andlegu álagi síðustu daga og því fór sem fór. Ég vona að þessi óafsakanlega hegðun mín skemmi ekki fyrir þeim málstað sem við erum að berjast fyrir"

Hérna er svo það sem þessi ágæti maður sendir frá sér

er ekkert launungarmál að ég er bæði sleginn og leiður yfir atviki því sem varð síðastliðinn fimmtudag þegar ég missti stjórn á skapi mínu og snéri niður lögregluþjón við Kirkjusand. Ég veit fullvel að það er ekkert sem ég get sagt til að taka þetta til baka, en þar sem fleiri hafa misst sig en ég vil ég koma nokkrum hlutum á hreint.

Ég er fjarri því að vera mikill skapmaður eins og ótalmargir geta vitnað um. Atburðir undanfarinna daga og sú neyð sem hrakti mig og aðra atvinnubílstjóra útí aðgerðir hafa tekið sinn toll og þanþolið var við það að bresta á miðvikudag þegar ég horfði uppá lögreglu beita félaga mína, saklausa áhorfendur og jafnvel barn hörku af fyrrabragði, á þessum svarta degi var farið langt útfyrir alla meðalhófsreglu, ekki skrítið að maður hafi upplifað sig í hættu og þetta setið í manni.

Mín leið á erfiðum tímum hefur venjulega verið að hlægja að aðstæðum og það fór því svo að ég stillti mér upp fyrir blaðalljósmyndara á fimmtudeginum veifandi kylfu og grettur á svip, Þetta átti að vera nett ádeila á viðbrögð lögreglu deginum áður. Eftir myndatökuna mæti ég á Kirkjusand til að sýna félögum mínum stuðning.

Á Kirkjusandi var ég beðinn um leyfi fyrir líkamsleit sem ég sagði óþarfa og afhenti möglunarlaust kylfuna en tók það skýrt fram að ég vildi fá hana til baka þegar ég færi af svæðinu og var það samþykkt af lögregluþjóni. Eitthvað leist yfirvaldinu samt illa á „vopnaburðinn" og var ég beðinn um skilríki sem ég afhenti án teljandi muldurs.

Hegðun lögreglumanna á svæðinu fannst mér ögrandi og virðing í samskiptum engin, t.d. tók það mikið tuð að fá skilríkið til baka. Þegar skilríkjunum var loks skilað og ég hugðist hafa mig á brott af svæðinu og bið um kylfu mína til baka þá neitaði lögreglumaður því þrátt fyrir fyrr gefið loforð.

Það verður að viðurkennast að þarna sá ég rautt. Ég hlaut sjálfur ágætt uppeldi og hef ekki lagt fyrir mig að ljúga og svíkja, þessi eignaupptaka fannst mér með öllu ósanngjörn og ekki bætti þau tilsvör sem ég fékk þegar ég ítrekaði kröfu mína.

Það sem gerðist næst er hlutur sem ég sé mikið eftir en ég snéri niður lögregluþjóninn sem hafði ögrað mér. Á leifturhraða hópuðust að lögregluþjónar og lögðust á okkur í eina kás, ég hafði þá sleppt taki á lögregluþjóninum en lá fastur í þvögu sárþjáður með laskað hné og í andnauð og var því hvorki fær um að meiða lögregluþjóninn, né koma mér úr þvögunni. Þungi lögregluþjónanna sem ofaná okkur lá held ég að hafi skaðað téðan lögreglumann meira en nokkuð annað.

Biðst afsökunar

Einhverjir fjölmiðlar hafa ekki sagt eða sýnt frá öllu eins og þetta kom fyrir. Ég vil nota þetta tækifæri til að biðja lögregluþjóninn afsökunar, það var ekki ætlun mín að meiða hann og er ég þess fullviss að ef við hefðum hist við aðrar kringumstæður hefðum við getað sötrað saman bjór og rætt um boltann, aðstæðurnar voru bara fjandsamlegri en svo og það fundu fleiri en ég því margt hefur fokið í hitanum síðustu daga.

Ég vona að þetta atvik dragi ekki úr þeim góða stuðningi sem málstaðurinn hefur hlotið hjá almenningi og þetta sýnir kannski betur en margt annað hversu mikil neyðin er hjá þeim sem reka flutningabíla, afkoma fjölskyldna þeirra er í hættu.

Það fer enginn útí svona aðgerðir nema neyðin sé þess mun meiri. Þegar aðstæður eru þannig að það er upp og ofan hvort maður getur brauðfætt fjölskylduna þá fara menn útí aðgerðir, það er náttúrulegt. Ég vona að fólk taki afsökunarbeiðni minni og standi við bakið á því góða fólki sem minnir á sig með nettri borgaralegri óhlýðni," undir þetta ritar Ágúst Fylkisson.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Schulii » Sun 27. Apr 2008 10:24

Sammála. Þeir sem maður hefur séð tjá sig fyrir þennan hóp virðast bara ekki geta tekið ábyrgð á því sem þeir segja og gera. Þeir eru alltaf mikil fórnarlömb aðstæðna. Eins og þú segir, hann byrjar ágætlega en í lokin er hann verulega farinn að firra sig ábyrgð.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby BjarkiHS » Sun 27. Apr 2008 11:07

Mér þykir þetta góð og gild afsökunarbeiðni. :roll:
BjarkiHS
Getawaybílstjóri
 
Posts: 981
Joined: Thu 07. Sep 2006 22:08
Location: Ásbrú

Postby IngóJP » Mon 28. Apr 2008 00:48




:lol: :lol:
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby burgerking » Mon 28. Apr 2008 00:53

Miðað við hvað allt er að stefna í með þessi mótmæli liggur við að maður setji upp bás á næstu mótmælum sem selur sundgleraugu fyrir þá sem finnst gott að láta sprauta í andlitið á sér :lol:
e36 316 Touring 1998
Image
User avatar
burgerking
Getawaybílstjóri
 
Posts: 868
Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Location: Kópavogur

Postby arnibjorn » Mon 28. Apr 2008 00:54

IngóJP wrote:http://www.youtube.com/watch?v=2arIei1ycK8


:lol: :lol:


Þetta er ekkert nema algjör snilld!!

GAS GAS GAS GAS
Enginn bíll!
arnibjorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 16512
Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Location: Rvk city

Postby IngóJP » Mon 28. Apr 2008 01:02

arnibjorn wrote:
IngóJP wrote:http://www.youtube.com/watch?v=2arIei1ycK8


:lol: :lol:


Þetta er ekkert nema algjör snilld!!

GAS GAS GAS GAS


Aha ég er alltaf að öskra þetta á Pabba hann felur sig þá

held að hann vilji ekki fá meira af þessu framaní sig :lol:
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby fart » Mon 28. Apr 2008 06:54

IngóJP wrote:http://www.youtube.com/watch?v=2arIei1ycK8


:lol: :lol:


Þetta er helvíti vel gert.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby birkire » Mon 28. Apr 2008 11:15

http://ellioman.com/gasman/

Skellið ykkur á Gas-man hringitóna í símann ! :lol:
vti
birkire
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 2518
Joined: Fri 30. Nov 2007 12:46
Location: sniffa lím

Postby Sta » Mon 28. Apr 2008 11:23

Gas-man er bara orðinn mega frægur :lol: haha ..
User avatar
Sta
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 70
Joined: Wed 26. Mar 2008 20:27

Postby guðni H » Mon 28. Apr 2008 12:39

já ég var þarna hjá ólís allan tíman og stóð þarna í saklaysi mínu en fékk samt þetta helvíti í augun sem var ekki gott löggan missti allveg stórn á sér
guðni H
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 28
Joined: Mon 28. Apr 2008 12:01

Postby fart » Mon 28. Apr 2008 13:28

guðni H wrote:já ég var þarna hjá ólís allan tíman og stóð þarna í saklaysi mínu en fékk samt þetta helvíti í augun sem var ekki gott löggan missti allveg stórn á sér


Af hverju færðir þú þig ekki nógu langt frá?
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby ///M » Mon 28. Apr 2008 13:59

fart wrote:
guðni H wrote:já ég var þarna hjá ólís allan tíman og stóð þarna í saklaysi mínu en fékk samt þetta helvíti í augun sem var ekki gott löggan missti allveg stórn á sér


Af hverju færðir þú þig ekki nógu langt frá?


Nú þá hefði hann ekki fengið úða í augun og gæti því ekki vælt í öllum hvað löggan er vond :lol:
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests