*HJÁLP* Paypal

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Zyklus » Fri 25. Apr 2008 15:45

Varðandi þessi fyrirfram greiddu kreditkort þá er þetta nú ekki eins mikil snilld og margir vilja meina.

Eini ávinningurinn af fyrirfram greiddu kreditkorti umfram venjulegt er að þú eyðir ekki um efni fram því það þarf að vera inneign á kortinu. Þannig að ef maður er þokkalega sjálfsagður þá er alveg eins hægt að hafa venjulegt kreditkort.

Auk þess sem að þú færð enga vexti af inneigninni á kortinu (bankinn/kreditkortafyrirtækið hirðir þá...) og að þegar þú borgar með venjulegu kreditkorti þá ertu í raun að fá vaxtalaust lán í allt að 1 1/2 mánuð (fer eftir því hvenær viðskiptin fara fram á kortatímabilinu).
Þess vegna er um að gera þegar þið eruð að kaupa einhverjar dýrar vörur út í búð að biðja alltaf um staðgreiðsluafslátt, ef hann fæst ekki þá borgar þú bara með kreditkortinu og þú getur látið peninginn vinna fyrir þig inná bók þangað til þú færð kreditkortareikninginn.
Svo auðvitað ef maður er með svona fyrirfram greitt kort þarf maður alltaf að vera að standa í því að leggja inná það þegar inneignin klárast, það er mjög pirrandi að þurfa að kaupa eitthvað og svo þegar maður ætlar að borga þá man maður eftir því að það er engin inneign á kortinu...

Þannig að í stuttu máli sagt myndi ég ekki mæla með svona korti (ekki nema fyrir þá sem hafa enga stjórn á neyslunni og gera sér ekki grein fyrir því hversu miklu þeir eyða).
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Axel Jóhann » Fri 25. Apr 2008 15:52

Jss wrote:
JOGA wrote:Pínu off-topic en hér í UK eru öll debet kort með kortanúmeri og því hægt að nota þau til að versla á netinu og í gegn um Paypal rétt eins og með debetkort.

Finnst það fáránlega þægilegt. Auðvelt að kaupa inneignir í gegn um síma, drasl á netinu, borga reikninga í gegn um síma o.s.frv.. Hafið þið eitthvað heyrt um slíkt heima á skeri?


Það er verið að taka þetta upp hér á "skerinu" líka, þ.e. að setja kortanúmerin á debetkortin líka, komið á mörg kort nú þegar.




Ég er með þannig!
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Jónas » Sun 11. May 2008 11:32

Axel Jóhann wrote:
Jss wrote:
JOGA wrote:Pínu off-topic en hér í UK eru öll debet kort með kortanúmeri og því hægt að nota þau til að versla á netinu og í gegn um Paypal rétt eins og með debetkort.

Finnst það fáránlega þægilegt. Auðvelt að kaupa inneignir í gegn um síma, drasl á netinu, borga reikninga í gegn um síma o.s.frv.. Hafið þið eitthvað heyrt um slíkt heima á skeri?


Það er verið að taka þetta upp hér á "skerinu" líka, þ.e. að setja kortanúmerin á debetkortin líka, komið á mörg kort nú þegar.




Ég er með þannig!


Sorry að ég sé að vekja upp gamalt topic en ég fékk ekki svör síðast..

Hvaða bankar eru með þetta?

Var að skoða heimasíður hjá öllum held ég og sá þetta ekki neinstaðar undir kort..?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby Eggert » Sun 11. May 2008 12:38

Það er svona númer á debetkortinu mínu frá KB, fékk þetta kort um áramót. Hef samt ekki prufað að tengja þetta við PayPal, veit ekki hvort það sé hægt.
Er ennþá að nota fyrirframgreidda kreditkortið mitt við PayPal, og nota það eingöngu við að versla af netinu. Bara þægilegt.
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Postby _Halli_ » Sun 11. May 2008 15:23

Eggert wrote:Það er svona númer á debetkortinu mínu frá KB, fékk þetta kort um áramót. Hef samt ekki prufað að tengja þetta við PayPal, veit ekki hvort það sé hægt.
Er ennþá að nota fyrirframgreidda kreditkortið mitt við PayPal, og nota það eingöngu við að versla af netinu. Bara þægilegt.


Ég var einu sinni forvitinn og hringdi í Borgun (MasterCard) og talaði við einhvern gæja þar sem sagði að þetta væri bara til skrauts :lol:

Sel það ekki dýrara en ég keypti það
Neðanjarðarlestir, sporvagnar og strætisvagnar
BMW E36 '91 318i - Bifreið - R.I.P
Dethleffs Rondo RF3 '98 - Hjólhýsi - Í vetrardvala
CombiCamp 2000 '78 - Tjaldvagn - SELDUR
User avatar
_Halli_
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 424
Joined: Tue 31. May 2005 19:39
Location: Oslo

Postby Lindemann » Sun 11. May 2008 15:23

ég er með svona gulldebetkort frá kaupþing sem ég fékk fyrir ca. mánuði síðan og það er ekkert númer á því.....svo er ég bara með fyrirframgreitt kreditkort.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests