Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Fríða María » Thu 24. Apr 2008 03:20

Að grýta eggjum er bara barnalegasta sem að maður veit um þetta er ekki einu sinni cool að gera þetta....

Sumt fólk hugsar ekki hvað það gerir og láta ser detta það í hug að kasta eggjum og hvað þá grjóti fáránlegt
Fríða María
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Location: Austfirðir

Postby Aron Andrew » Thu 24. Apr 2008 03:35

Fríða María wrote:Að grýta eggjum er bara barnalegasta sem að maður veit um þetta er ekki einu sinni cool að gera þetta....

Sumt fólk hugsar ekki hvað það gerir og láta ser detta það í hug að kasta eggjum og hvað þá grjóti fáránlegt

Þessi eggjakastsumræða er nú bara efni í annann þráð, það voru bara einhverjir krakkagríslingar sem þótti þetta svaka sniðugt og tengdust vörubílstjórum ekki á nokkurn hátt.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby zazou » Thu 24. Apr 2008 06:52

Þetta er bara rokk. Raunveruleikatíví fyrir okkur hin, etv smá von um að bensínskatturinn verði lækkaður 8)

Leitt þó ef fólk skaddast.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby Hannsi » Thu 24. Apr 2008 07:59

siggir wrote:
Vargur wrote:
hlynurst wrote:Þekkir þú Skúla eitthvað?

Já, ég þekki Skúla.

Ekki ætla ég að réttlæta grjótkastið neitt.
Framkoma lögreglumanna þarna á staðnum var til skammar og ef fólk sér atburðarásina í rétti tímaröð þá sjá það væntanlega allir.

Bíddu nú aðeins.

Það var búið að gefa mótmælendum marga sénsa á að færa bílana og dreifa hópnum. Í þessu bloggi sem þér vitnið í er talað um að þetta hafi verið að leysast upp en það hefur bara verið of lítið og of seint. Það var bara búið að ýta á takkann og það er heldur seint að hætta við þegar sprengjunni hefur verið varpað. Lögreglan varaði fólkið við og hóf aðgerðir þegar tilmælum hennar var ekki hlýtt. Svona er þetta bara.

Það er hart að vera harðfiskur

Hvað með fólkið sem var ekkert fyrir og var bara að fylgjast með? Átti það skylið á vera meisað fyrir það eitt að vera þarna?
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby fart » Thu 24. Apr 2008 08:36

Hannsi wrote:

Hvað var þetta fólk að gera þarna til að byrja með? Gat ekki betur séð en nákvæmlega það fók væri þarna gagngert til að æsa upp lögguna og reyna að lenda í slag. Áhorfendur halda sig í fjarlægð og horfa á, þáttakendur standa hasarnurm. Ef einhver fékk úða yfir sig stóð hann í actioninu.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Vargur » Thu 24. Apr 2008 09:40

Bjarki wrote:Vörubílstjórar fóru greinilega yfir strikið og það hefur verið ljóst frá upphafi að jafnvel æðstu ráðamenn Íslands geta lítið ráðið við heimsmarkaðsverð á olíu

:roll: Það er reyndar ekki verið að mótmæla heimsmarkaðsverði á olíu heldur álögum ríkisins á olíu og bensíni.

Stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í að lækka olíugjaldið og slá þannig aðeins á verðbólgu og hækkandi verðlag sem er að sliga heimilin í landinu.

Þá væri fínt að lækka olíugjaldið aðeins meira á díselolíunni og friða þannig atvinnubílstjóra og gera díselbíla aftur raunhæfan kost fyrir almenning og draga þannig úr mengun.

Ráðamenn þjóðarinnar ættu að draga hausinn úr rassgatinu, hætta þessu einkaþotu ferðalagi um allar trissur og gera eitthvað í málunum hér heima.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Hannsi » Thu 24. Apr 2008 09:46

fart wrote:
Hannsi wrote:
siggir wrote:
Vargur wrote:
hlynurst wrote:Þekkir þú Skúla eitthvað?

Já, ég þekki Skúla.

Ekki ætla ég að réttlæta grjótkastið neitt.
Framkoma lögreglumanna þarna á staðnum var til skammar og ef fólk sér atburðarásina í rétti tímaröð þá sjá það væntanlega allir.

Bíddu nú aðeins.

Það var búið að gefa mótmælendum marga sénsa á að færa bílana og dreifa hópnum. Í þessu bloggi sem þér vitnið í er talað um að þetta hafi verið að leysast upp en það hefur bara verið of lítið og of seint. Það var bara búið að ýta á takkann og það er heldur seint að hætta við þegar sprengjunni hefur verið varpað. Lögreglan varaði fólkið við og hóf aðgerðir þegar tilmælum hennar var ekki hlýtt. Svona er þetta bara.

Það er hart að vera harðfiskur

Hvað með fólkið sem var ekkert fyrir og var bara að fylgjast með? Átti það skylið á vera meisað fyrir það eitt að vera þarna?

Hvað var þetta fólk að gera þarna til að byrja með? Gat ekki betur séð en nákvæmlega það fók væri þarna gagngert til að æsa upp lögguna og reyna að lenda í slag. Áhorfendur halda sig í fjarlægð og horfa á, þáttakendur standa hasarnurm. Ef einhver fékk úða yfir sig stóð hann í actioninu.

Íslendigar eru bara svo ÓGEÐSLEGA forvitnir ;)
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr
User avatar
Hannsi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4492
Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Location: Að rústa öllum í sjómann....

Postby fart » Thu 24. Apr 2008 09:46

Vargur wrote:
Bjarki wrote:Vörubílstjórar fóru greinilega yfir strikið og það hefur verið ljóst frá upphafi að jafnvel æðstu ráðamenn Íslands geta lítið ráðið við heimsmarkaðsverð á olíu

:roll: Það er reyndar ekki verið að mótmæla heimsmarkaðsverði á olíu heldur álögum ríkisins á olíu og bensíni.

Stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í að lækka olíugjaldið og slá þannig aðeins á verðbólgu og hækkandi verðlag sem er að sliga heimilin í landinu.

Þá væri fínt að lækka olíugjaldið aðeins meira á díselolíunni og friða þannig atvinnubílstjóra og gera díselbíla aftur raunhæfan kost fyrir almenning og draga þannig úr mengun.

Ráðamenn þjóðarinnar ættu að draga hausinn úr rassgatinu, hætta þessu einkaþotu ferðalagi um allar trissur og gera eitthvað í málunum hér heima.

Það þarf að finna einhverja lausn.. áður en allt verður crazy. En mér finnst samt að hótanir í garð lögreglu séu massa vitlausar og over the top.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Giz » Thu 24. Apr 2008 09:48

Þetta er eiginlega ein fáránlegasta umræða ever, fólk fær það sem það biður um, svo einfalt er það.

Það er eins og fólk hafi með tilkomu raunveruleikaTVs og álíka bulls gleymt að það lifir ekki í sjónvarpinu, og það sem það gerir hefur afleiðingar. Heldur að það er það heppið að búa í lýðræðisþjóðfélagi, nota bene einu ríkasta, gegnsæjasta og besta, hvað varðar lífsgæði allavega, í heimi. Auðvitað má alltaf eitthvað betur fara osfr., en þetta er kosin stjórn sem þarna stýrir, ef fólk er ósátt við það, þá er að kjósa annað næst. En, fólkið sem hvað hæst baular í þessu, gæti ég trúað að væri sama fólkið og skilar alltaf auðu eða kýs ekki í kosningun, vegna þess að að "þýðir ekki neitt", og hefur þar með fyrirgert rétti sínum til að baula fyrir það fyrsta.

Ég fylgi BB síður en svo að málum, en get ekki annað en hrósað löggunni fyrir að taka af hörku og alvöru á málunum.

Og annað, þið sem baulið um að Ísland sé lögregluríki osfr. ætti að mínu viti að halda kj. Ég hef búið í þónokkrum alvöru lögregluríkjum, þó svo þú eigi sum að heita fyrrum lögregluríki, og ef menn væla yfir smá meis úða á trukkara í fýla, þá er ekki beint mikið tilefni til þess að væla.

Og annað, ég ferðast út um allt, oft keyrandi og tek þ.a.l. mikið bensín víða, og bensín á Íslandi er ekki dýrt m.v. víða erlendis. Það er einfaldlega allt að hækka allsstaðar, eða svo gott sem, og sumir hafa verið forsjálir og eiga fyrir því, aðrir, (þmt flestir Íslendingar fær maður á tilfinninguna) hafa ekki bolmagn til að borga krónu meira sökum jeppaeignar, húsakaupa osfr.

Rant over

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Postby Giz » Thu 24. Apr 2008 09:54

Vargur wrote:
Bjarki wrote:Vörubílstjórar fóru greinilega yfir strikið og það hefur verið ljóst frá upphafi að jafnvel æðstu ráðamenn Íslands geta lítið ráðið við heimsmarkaðsverð á olíu

:roll: Það er reyndar ekki verið að mótmæla heimsmarkaðsverði á olíu heldur álögum ríkisins á olíu og bensíni.

Stjórnvöld ættu að sjá sóma sinn í að lækka olíugjaldið og slá þannig aðeins á verðbólgu og hækkandi verðlag sem er að sliga heimilin í landinu.

Þá væri fínt að lækka olíugjaldið aðeins meira á díselolíunni og friða þannig atvinnubílstjóra og gera díselbíla aftur raunhæfan kost fyrir almenning og draga þannig úr mengun.

Ráðamenn þjóðarinnar ættu að draga hausinn úr rassgatinu, hætta þessu einkaþotu ferðalagi um allar trissur og gera eitthvað í málunum hér heima.

Rétt að benda á eitt, svo skal ég sjálfur halda kj.

Það er hvort einhver hafi tékkað á hversu langt síðan Ísland hætti að taka á móti þróunaraðstoð erlendis frá? Það er nefnilega ekki svo langt síðan.

Mér finnst ákaflega ríkjandi þetta þiggja, þiggja attitjúd á Íslandi, en ekkert að gefa í staðinn, það er óþarfi....

G
e39 M5 Carbon Schwartz
Audi A3 "Sportback" 1.6 TDi Miljöpowah!
e9 CSA 1973
User avatar
Giz
Getawaybílstjóri
 
Posts: 827
Joined: Tue 29. Jul 2003 00:36
Location: Erlendis

Postby Orville » Thu 24. Apr 2008 10:16

Ég er nokkuð viss um að þú (fart) hefðir verið á staðnum ef þú hefðir verið á mennta- eða grunnskólaaldri og tekið á einhvern hátt þátt í mótmælunum!

Þessir krakkar mættu þarna bara af forvitni og hver man ekki eftir smá uppreisnartímabili í sjálfum sér gagnvart lögreglunni??? (kannski ekki fart)
En þetta varð greinilega "sport" þegar að einhver svartur sauðurinn fór inn og keypti egg til að kasta í átt að lögreglu.

Það er alveg ljóst að þetta fór algjörlega úr böndunum hjá báðum aðilum, mótmælendum og lögreglunni! Ég persónulega stend meira með vörubílstjórunum í öllum þessum aðgerðum en auðvitað er það mín skoðun.
Lögreglan gekk of hart að mönnum þegar hún var komin út fyrir sitt merkta svæði til þess að skvetta bensíni á eldinn.
Mér fannst þetta eiginlega vera typísk vinnubrögð hjá yfirvaldinu að beita svona ofurvaldi!!
Orville
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 39
Joined: Sun 30. Apr 2006 22:44
Location: Reykjavíkin

Postby Kristjan PGT » Thu 24. Apr 2008 10:50

Ég er orðlaus eftir að hafa lesið þennan þráð.

Ég held að margir hér hafi ekki einu sinni séð fréttirnar eða hafi hugmynd um hvernig þetta fór fram. "Löggan var búinn að vara þau við...." Og hvað?

Sem dæmi þá strengdi lögreglan upp gulan borða og sagði að enginn mætti fara yfir hann. Þessi borði stóð á lóðarmörkum Olís. Enginn fór yfir þennan borða nema lögreglan sjálf þegar að fullorðinn maður var að gala á þá að Lögreglan væir að berjast fyrir vitlausa menn..að þeir væru vitlausumeginn í þessu öllu saman. (ég tók eftir þvi að þessi maður var ekki með dónaskap, hann var ekki að blóta, hann var að segja sitt.) Þá fær einn af þessum vanhæfu víkingarsveitarmönnum kast og hleypur að þessum fullorðna manni sem stóð í minnsta 2m fjarlægð frá þessari línu og lögreglumönnunum. Restin af VWV (Vanhæf wanabe víkingasveit) hleypur að þessum eina manni eins og krakkar á 17. Júní sem sjá slagsmál.

Krakki hendir eggjum í VWV...aðrir krakkar höfðu gert þetta en þarna fékk VWV nóg þar sem þeir ráða ekki við skap sitt. Þá ætlar einhver hetjan úr VWV að hlaupa uppi krakkann....og eins og á sautjánda júní fylgdu hinir með og allt út í fullorðnum mönnum að hlaupa með skíðahjálma og skyldi.

Áður en lætin byrjuðu þá var einhver yfirlögregluþjónn spurður í viðtali hvort ætti að beita harkalegum aðferðum og hann svaraði "Bíddu bara og sjáðu..."

Lögreglan hefur ekki rétt til alls!
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Postby bimmer » Thu 24. Apr 2008 11:05

Þeir eru nú ekki alveg að fíla að vera teknir á eigin bragði :lol:

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Thu 24. Apr 2008 11:08

bimmer wrote:Þeir eru nú ekki alveg að fíla að vera teknir á eigin bragði :lol:

Þessi maður var víst engan veginn tengdur mótmælunum og gaurinn sem stoppaði umferðina ætlaði víst að "styðja" hina með því að stoppa götur þarna í kring.

Mér fannst þetta bara býsna gott hjá honum að hóta með þessu, leiðinlegt að vídeoið hætti :oops:
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Thu 24. Apr 2008 11:08

Virðist vera nokkuð tvíeggja þessi saga af atburðunum.

Held ég treysti á framburð þeirra sem VORU þarna í stað klipptra frétta. skýringa.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests