Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Schulii » Thu 24. Apr 2008 00:08

Ég er búinn að vera að hlusta á útvarp í dag, fréttir, lesa einhver moggablogg og ég get ekki lýst því hvað ég var ánægður að sjá að hérna heima (bmwkraftur.is) fannst mér ég loksins sjá menn með sömu sjónarmið og ég. Ég bara get ekki skilið hversu mikinn stuðning þessir menn hafa! Þetta er bara algjört rugl!

ÉG STYÐ LÖGREGLUNA 100% Í AÐGERÐUM ÞEIRRA GEGN VÖRUBÍLSTJÓRUM OG ÖÐRUM MÓTMÆLENDUM Í DAG!!

Að hlusta á Sturlu í kastljósi í kvöld var ótrúlegt, ég meina, það eru BARA kveikt ljós en EKKERT annað í gangi. Svo heyrði ég í honum í viðtali einn morguninn á Bylgjunni þar sem hann sagði:

"Ja, nú er það svart.. löggan bara farin að hlera símana hjá okkur"

..og eftir að hafa verið beðinn um skýringu:

"já, ég fékk ábendingu um það að það væri verið að hlera símann hjá mér og við strákarnir ákváðum að athuga málið og sátum á N1 stöðinni í Ártúnsbrekku og hringdum í hvorn annan og töluðum um að fara að gera eitthvað í Ártúnsbrekkunni, og viti menn, kemur ekki bara lögreglubíll nokkrum mínútum seinna upp Ártúnsbrekkuna!" :roll:

..allavega, ég gæti sagt helling í viðbót og í staðinn fyrir að eyða þessu innleggi eins og ég ætlaði að gera þá nenni ég bara ekki að tjá mig meira um þetta og læt þetta bara flakka.

Bara að lokum, ég er stoltur af lögreglunni og því hvernig hún tók á málum í dag! Ég hef aldrei skammast mín eins mikið fyrir að vera íslendingur eins og þegar ég sé það að það virðist sem meirihluti þjóðarinnar standi með vörubílstjórunum!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Vargur » Thu 24. Apr 2008 00:27

Ég skammast mín ekki fyrir að vera Íslendingur en ég skammast min fyrir að þekkja þig shculii eftir þenn lestur.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby hlynurst » Thu 24. Apr 2008 00:38

Vargur wrote:Ég skammast mín ekki fyrir að vera Íslendingur en ég skammast min fyrir að þekkja þig shculii eftir þenn lestur.


Þekkir þú Skúla eitthvað?

Finnst fáránlegt að þú póstir texta af einhverju bloggi sem sýnir skoðanir manns sem leggur það að jöfnu að lögreglan framfylgi lög og reglum við að grýta menn sem getur hugsanlega valdið mjög alvaralegum meiðslum!

Vargur wrote:Nú spyr ég ykkur gott fólk, þegar þið hafið kannski heyrt betur um það sem fór fram þarna í dag, finnst ykkur það skrítið að svarað sé með grjótkasti og ofbeldi þegar lögregla sýnir slíka valdníð og í rauninni dómgreindarleysi, það voru að mestu leyti aðgerðir lögreglu sem keyrðu áfram þessi mótmæli og kynntu undir þessum potti svo sauð uppúr. Ég spyr ykkur sem skrifið hér hörð mæli gegn þeim sem voru þarna hérna útum allan vef, skoðið myndböndin og annað vel því þið hafið svo langt í frá séð heildarmyndina á þessu máli og getið í raun að engu leyti dæmt um.


Maður spyr sig hver hafi sýnt dómgreindarleysi þegar þessum steini var kastað!
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Vargur » Thu 24. Apr 2008 00:52

hlynurst wrote:Þekkir þú Skúla eitthvað?


Já, ég þekki Skúla.

Ekki ætla ég að réttlæta grjótkastið neitt.
Framkoma lögreglumanna þarna á staðnum var til skammar og ef fólk sér atburðarásina í rétti tímaröð þá sjá það væntanlega allir.
Tommi camaro fanclub member no. 03
User avatar
Vargur
Getawaybílstjóri
 
Posts: 600
Joined: Thu 20. Feb 2003 14:56
Location: Í aftursæti lögreglubíls

Postby Tommi Camaro » Thu 24. Apr 2008 00:59

Vargur wrote:
hlynurst wrote:Þekkir þú Skúla eitthvað?


Já, ég þekki Skúla.

Ekki ætla ég að réttlæta grjótkastið neitt.
Framkoma lögreglumanna þarna á staðnum var til skammar og ef fólk sér atburðarásina í rétti tímaröð þá sjá það væntanlega allir.

gaurinn sem fékk grjótið í sig, var gerpis löggan sem var að tapa sér með piparúðan, ég var þarna á staðnum að fýlgjast með og hann spreyjaði bara í allar áttir, þó að fólk hafi verið að hörfa þá mökaði hann bara yfir það úðanum,
í dag var löggan að kosta okkur almenna skattborgara fleiri milljónir,það verða kærur og fleira eftir þetta hjá þeim ,
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby Fríða María » Thu 24. Apr 2008 01:15

Fáránlegt ef að það á að kæra lögguna fyrir þetta en sumir átta sig ekki á því að þetta er nátturlega mótmælendurnir líka...
Fólk mætir þarna til að mótmæla og auðvitað kemur löggan líka til að vinna sína vinnu og reyna að stoppa þetta mál sem átti ser stað...
Og hvað þá ungmenni að mæta þarna og kasta eggjum það er einum of...
Þetta er mitt álit á þessu ég er ekkert að halda með einum né neinum herna því þegar að ég horfði á þetta í sjónvarpinu þá var ég bara hissa á fólki að vera grýta eggjum en það hefði alveg verið hægt að finna aðra leið því að grýta eggjum og grjóti gerir þetta bara íllt verra og þá er ekkert tekið mark á þessu en eins og að sturta mol á götuna er allt annað því það slasast engin á því
Fríða María
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Location: Austfirðir

Postby siggir » Thu 24. Apr 2008 01:25

Vargur wrote:
hlynurst wrote:Þekkir þú Skúla eitthvað?


Já, ég þekki Skúla.

Ekki ætla ég að réttlæta grjótkastið neitt.
Framkoma lögreglumanna þarna á staðnum var til skammar og ef fólk sér atburðarásina í rétti tímaröð þá sjá það væntanlega allir.


Bíddu nú aðeins.

Það var búið að gefa mótmælendum marga sénsa á að færa bílana og dreifa hópnum. Í þessu bloggi sem þér vitnið í er talað um að þetta hafi verið að leysast upp en það hefur bara verið of lítið og of seint. Það var bara búið að ýta á takkann og það er heldur seint að hætta við þegar sprengjunni hefur verið varpað. Lögreglan varaði fólkið við og hóf aðgerðir þegar tilmælum hennar var ekki hlýtt. Svona er þetta bara.

Það er hart að vera harðfiskur
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Postby IngóJP » Thu 24. Apr 2008 01:50

Þessar hetjur (löggan) tóku Pabba og meisuðu hann þegar hann stóð utanvegar við hliðiná bílnum sínum á hvíldurstæðinu. Hann teigði sig í Sturlu og ætlaði að leiða hann útaf götunni eftir að hafa fengið úða framaní sig. Pabbi féll niður við þetta og þeir ætluðu að traðka yfir hann og lömdu hann með kylfum :roll: . Ég ásamt 2 öðrum rétt náðum að rífa kallinn í burtu og koma honum í skjól.

ÉG STYÐ FREKARI AÐGERÐIR...
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby ///MR HUNG » Thu 24. Apr 2008 01:51

Mér er sama hvað þið segið,Mér finnst löggimann hafa drullað langt upp á bak í dag með þessu rugli.

GAS...GAS...GAS...GAS...Gaurinn er án efa lögga mánaðarins 8)
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby Gunni » Thu 24. Apr 2008 02:05

///MR HUNG wrote:Mér er sama hvað þið segið,Mér finnst löggimann hafa drullað langt upp á bak í dag með þessu rugli.

GAS...GAS...GAS...GAS...Gaurinn er án efa lögga mánaðarins 8)


Er þetta sami gaur og gerði plexiglers-byssurekkann þinn upptækan :lol:
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby Ibzen » Thu 24. Apr 2008 02:14

IngóJP wrote:Þessar hetjur (löggan) tóku Pabba og meisuðu hann þegar hann stóð utanvegar við hliðiná bílnum sínum á hvíldurstæðinu. Hann teigði sig í Sturlu og ætlaði að leiða hann útaf götunni eftir að hafa fengið úða framaní sig. Pabbi féll niður við þetta og þeir ætluðu að traðka yfir hann og lömdu hann með kylfum :roll: . Ég ásamt 2 öðrum rétt náðum að rífa kallinn í burtu og koma honum í skjól.

ÉG STYÐ FREKARI AÐGERÐIR...


Gegn lögreglunni þá? Eða kannski frekari mótmæli? Mótmæla hverju þá?
BMW 320 e36 "93 -í notkun-
User avatar
Ibzen
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 252
Joined: Fri 26. Sep 2003 23:08
Location: Hafnarfjörður

Postby Brútus » Thu 24. Apr 2008 02:17

Um að gera að gefa þessum löggum smá egg.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56

Postby Bjarki » Thu 24. Apr 2008 02:29

Vörubílstjórar fóru greinilega yfir strikið og það hefur verið ljóst frá upphafi að jafnvel æðstu ráðamenn Íslands geta lítið ráðið við heimsmarkaðsverð á olíu og reglur um hvíldartíma ökumanna hljóta eru til þess að stuðla að öryggi í umferðinni, öryggi kostar - líka slys.
Mótmæli eru góð og gild en það eru takmörk fyrir öllu.

Mín skoðun er sú að lögreglan hafi aðeins misst sig í þessu. Þeir voru aðeins of ýktir, ætluðu þvílíkt að sýna mátt sinn.
Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn gildir ekki fyrir lögreglumenn, sjálfur var ég ekki á staðnum og kannski eru þær fréttamyndir sem við sjáum af verstu atvikunum en það sem maður sér á þessum myndum er eitthvað sem maður vill ekki sjá.
Hvaðan sem boðin komu og hvort þetta hafi verið eina leiðin þá er þetta lögreglunni ekki til framdráttar. Úti um allan bæ eru reiðir einstaklingar sem blóta lögreglunni í eld og ösku og það er engum til framdráttar.

Björn Bjarnason talaði í hring um málið í kvöldfréttum, lofaði gjörðir lögreglunnar en hafi svo á endanum ekkert séð og rétt heyrt af atburðum dagsins.

Ég vona að slíkar uppákomur séu ekki eitthvað sem koma skal!
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby IngóJP » Thu 24. Apr 2008 02:44

Ibzen wrote:
IngóJP wrote:Þessar hetjur (löggan) tóku Pabba og meisuðu hann þegar hann stóð utanvegar við hliðiná bílnum sínum á hvíldurstæðinu. Hann teigði sig í Sturlu og ætlaði að leiða hann útaf götunni eftir að hafa fengið úða framaní sig. Pabbi féll niður við þetta og þeir ætluðu að traðka yfir hann og lömdu hann með kylfum :roll: . Ég ásamt 2 öðrum rétt náðum að rífa kallinn í burtu og koma honum í skjól.

ÉG STYÐ FREKARI AÐGERÐIR...


Gegn lögreglunni þá? Eða kannski frekari mótmæli? Mótmæla hverju þá?


Það var aldrei meiningin að þetta skyldi leisast útí þessu vitleysu... Þeir sem ekki voru á staðnum hafa ekki hugmynd hvernig þetta byrjaði skemmtilega klippt til :roll: Lögreglan meinaði okkur að færa bílana af hvíldarstæðunum.

Og samt halda þeir því fram að þeir hafi ítrekað beðið okkur um að færa bílana :lol:

Við vorum stopp á hvíldarstæðinum og löggan lokaði veginum :cry:
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Postby Fríða María » Thu 24. Apr 2008 03:20

Að grýta eggjum er bara barnalegasta sem að maður veit um þetta er ekki einu sinni cool að gera þetta....

Sumt fólk hugsar ekki hvað það gerir og láta ser detta það í hug að kasta eggjum og hvað þá grjóti fáránlegt [/code]
Fríða María
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 44
Joined: Sun 03. Feb 2008 19:57
Location: Austfirðir

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests