Felgur undir e46 að utan - Endilega lesið..

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Felgur undir e46 að utan - Endilega lesið..

Postby Rooy » Wed 23. Apr 2008 14:37

Sælir strákar.

Ég var að kaupa felgur að utan og fór að forvitnast með dekk á þær ..

Þetta eru upplýsingarnar:

Image

Size: 18 X 8.5" front & 18 X 9.5 rear

Bolt Pattern: 5 X 120

Offset: 35 mm

Bíll: BMW 3 E46 2002 módel

Það fullyrðir maður sem á að þekkja til í bransanum að ég þurfi lágmark 255/40/18 á afturfelgurnar og 235/40/18 á framfelgurnar .. Kaupi þær frá eurowheels USA og þar fullyrða þeir þetta passi undir E46..

Þá spyr ég, er þetta ekki orðið of breitt fyrir E46? Ber hann 255/265 felgur/dekk að aftan að ykkar mati? Endilega skjótið að mér línu sem þekkja þetta betur en ég..
User avatar
Rooy
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 75
Joined: Sat 20. Sep 2003 13:39

Re: Felgur undir e46 að utan - Endilega lesið..

Postby bjahja » Wed 23. Apr 2008 14:57

Rooy wrote:
Það fullyrðir maður sem á að þekkja til í bransanum að ég þurfi lágmark 255/40/18 á afturfelgurnar og 235/40/18 á framfelgurnar .. Kaupi þær frá eurowheels USA og þar fullyrða þeir þetta passi undir E46..


hahah hvaði auli er þetta :lol:
En ég efast um að þetta passi undir non M e46 án þess að þurfi að rúlla, gæti passað ef þú stretchar minni dekk
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Rooy » Wed 23. Apr 2008 15:03

Starfsmaður Vöku.. :)

Ef illa fer, hvar mæliru með að fara með bíl í slíka aðgerð?
User avatar
Rooy
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 75
Joined: Sat 20. Sep 2003 13:39

Postby bjahja » Wed 23. Apr 2008 15:05

Ég myndi bara fara á e46fanatics.com og spurja hvernig þeir eru að runna þetta. Alveg þónokkrir meðlimir með svona felgur bæði undir M og non M bílum :)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Rooy » Wed 23. Apr 2008 15:32

Takk fyrir þetta kallinn..

Ég prófaði að renna gegnum spjallborðið hjá þeim og sýnist að það sé mjög algengt fyrir þessa felgustærð (sem virðist passa btw) að menn séu með 235/40 dekk að framan og 255/35 að aftan ..

Þannig ég krosslegg puttana og vona að þetta gangi .. :wink:
User avatar
Rooy
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 75
Joined: Sat 20. Sep 2003 13:39

Postby BirkirB » Wed 23. Apr 2008 15:50

Ég er til í link á þessa eurowheels síðu :D ???
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby Raggi- » Wed 23. Apr 2008 23:05

ég er reyndur í bransanum og þetta er hentug dekkjastærð fyrir þessar felgur, ef þetta á ekki að líta bjánalega hjá þér, en annars geturu eins og áður var nefnt stretchað mjórri dekk á þessar felgur, og rúllað brettin, með einhverjum sterkum sívalning t.d. járnröri og svo hitabyssu til að brjóta ekki lakkið upp, myndi samt fá leiðbeinanda í þessum málum með þér. annars ekkert flókið
Ragnar G. Jónsson
Subaru Legacy Wagon '98 2.0
Daihatsu Sirion '98 1.0 12v
Nissan Vanette Cargo '00 2.3 Diesel

Áður:
10x Daihatsu - 1x Nissan - 1x BMW
1x MMC - 1x Toyota - 1x Ford
User avatar
Raggi-
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 257
Joined: Fri 16. Mar 2007 11:08

Postby Gummco » Wed 23. Apr 2008 23:07

Rooy wrote:Takk fyrir þetta kallinn..

Ég prófaði að renna gegnum spjallborðið hjá þeim og sýnist að það sé mjög algengt fyrir þessa felgustærð (sem virðist passa btw) að menn séu með 235/40 dekk að framan og 255/35 að aftan ..

Þannig ég krosslegg puttana og vona að þetta gangi .. :wink:
á til svona dekk ef þig vantar.þessar stærðir,alveg ný,sími 846 2010
BMW E 92 árg 2008
volvo s 80 D 5 árg 2003
M Benz S 500 árg 1994
M Benz 230 E coupe árg 1990
Gummco
Kassabílstjóri
 
Posts: 179
Joined: Sun 09. Mar 2008 21:39
Location: Reykjavík

Postby azid » Thu 24. Apr 2008 02:43

255 sverasta sem þú kemur undir saloon/sedan samkvæmt e46fanatics. 265 undir coupe/convertable ;/
azid
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 11
Joined: Mon 05. Nov 2007 00:54

Postby Daníel » Thu 24. Apr 2008 08:47

Samkvæmt Tirerack er hentugt að nota 225/40 að framan og 245/35 að aftan.
Danni
Mercedes Benz Viano 2.2cdi 2003 "Langferðabíllinn"
Audi A6 1.8 1999 "garmurinn"
Enginn BMW
User avatar
Daníel
Getawaybílstjóri
 
Posts: 795
Joined: Fri 23. Sep 2005 14:08
Location: Höfuðborgarsvæðið

Postby JonHrafn » Thu 24. Apr 2008 18:18

245/40/17 á afturfelgu hjá mér(8,5"), það er nánast engin afgangur á mtech fjöðrun.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby Rooy » Sun 04. May 2008 16:10

Takk fyrir svörin strákar..

Eina sem ég er að gefa mér kaldan svita núna er að offsettið á felgunum er 35 meðan ég þykist vita að þær vera 40-44 á hefðbundnum e46 sedan bíl ekki satt?

Nú hljóta einhver hjólbarðarverkstæði vera í að rúlla bretti - Mælið þið með einhverjum sérstökum?
User avatar
Rooy
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 75
Joined: Sat 20. Sep 2003 13:39

Postby Aron Andrew » Sun 04. May 2008 16:14

Hjólbarðahöllin/N1 fellsmúla á svona græju en vilja ekki gera þetta fyrir fólk.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Rooy » Sun 04. May 2008 16:53

Það minnir mig á hótelstjórann sem vildi ekki fá gesti inn á setustofuna á hótelinu hjá sér því það þýddi að hann þyrfti að auka við kostnað á þrifum ..

Einhver annar? Ekki fræðilegur að ég fari að fikta við þetta sjálfur án þess að hafa nokkra reynslu af þessu eða þekkja e-n sem treystir sér í svona.. ;)

Ef það er e-r hér sem á búnað og kann þetta þá er ég alveg til í að borga honum einhverja aura fyrir .. Þ.e.a.s ef ég kem til með að þurfa gera þetta eins og allt bendir til ..
User avatar
Rooy
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 75
Joined: Sat 20. Sep 2003 13:39

Postby Brútus » Sun 04. May 2008 20:23

Var í TB um daginn og þeir segjast gera þetta.
User avatar
Brútus
Getawaybílstjóri
 
Posts: 930
Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 13 guests