Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby Benzer » Wed 23. Apr 2008 12:46

Þetta er bara mín skoðun á þessu máli..Mér finnst lögreglan ganga of langt í þessu.
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby bimmer » Wed 23. Apr 2008 12:47

Mótmæli eru eitt - en að loka vegum skipulega og neita að hlýða
tilmælum lögreglunnar um að hætta því er allt annað.

Hef enga samúð með bílstjórunum - þeir eru búnir að missa þetta
út í rugl og svo er algjört klúður að vera að blanda tveimur málum
saman þe. bensín/olíuverði (sem er global vandamál) og svo þessum
hvíldartímaákvæðum.

Þeir mega alveg mótmæla mín vegna en það að hindra umferð
almennings, stofna almannaöryggi í hættu og hlýða ekki tilmælum
lögreglu er bara ávísun á það sem þeir fengu að kynnast í dag.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Postby Leikmaður » Wed 23. Apr 2008 12:53

Benzer wrote:Mér finnst lögreglan ganga of langt í þessu.


Að hvaða leyti?
Jóhann Karl Hermannsson

BMW 520D F10 ´13
Kawasaki KX450f ´07
8 Ball Lowrider 20"
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby basten » Wed 23. Apr 2008 12:53

Það á bara að svipta þessa menn meiraprófsréttindum, þeir eru búnir að sýna það að þeir geta engan veginn höndlað þá ábyrgð sem fylgir því að stjórna stóru ökutæki.
Sérstaklega þegar þeir eru farnir að misnota þessi réttindi gegn almenningi og farnir að hóta því að lama samfélagið með lokunum.

Er fyrir löngu búinn að sjá það að því miður virðist vera frekar hátt hlutfall af óbrýndum hnífum í þessari stétt.
Siggi
basten
Getawaybílstjóri
 
Posts: 860
Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Location: Reykjavík

Postby Leikmaður » Wed 23. Apr 2008 13:02

basten wrote:Er fyrir löngu búinn að sjá það að því miður virðist vera frekar hátt hlutfall af óbrýndum hnífum í þessari stétt.


A.m.k. er *hóst* Sturla *hóst* ekki skarpasta tólið í skápnum, bjartasta kertið á kökununni etc. í þeim efnum...

Er ég sá eini sem fæ semi kjánahroll að hlusta á þennan mann svara spurningum í viðtölum fjölmiðlamanna?
Jóhann Karl Hermannsson

BMW 520D F10 ´13
Kawasaki KX450f ´07
8 Ball Lowrider 20"
Leikmaður
Getawaybílstjóri
 
Posts: 989
Joined: Tue 24. Sep 2002 23:55
Location: Seoul, South-Korea

Postby hauksi » Wed 23. Apr 2008 13:05

hlynurst wrote:
Benzer wrote:hehe..en þar sem þeir leggja ólöglega þá er bara hægt að sekta þá við þvi...Hvar eru þessir aular sem gefa lögreglunni fyrirmæli núna??


Ertu ekki að grínast?

Hvað finnst þér um seinstu frétt mbl? (Fréttin)

Er þetta í lagi?


Sést greinilega að steininum er kastað eftir að maze-úðanum var sprautað framan í fólk. (Ég hélt alltaf að það ætti sprauta maze á búkinn ekki andlitið)

En annars er ég sammála Ómari í þessu http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/516745/ Bíðum og fáum allt á hreint áður en lengra er haldið.
hauksi
Kassabílstjóri
 
Posts: 245
Joined: Wed 25. Oct 2006 12:31

Postby Benzer » Wed 23. Apr 2008 13:09

Sá i sjónvarpinu að einn maður sagði sína skoðun og löggan kom og handtók hann..þetta eru ömurleg vinnubrögð..
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby Aron Andrew » Wed 23. Apr 2008 13:11

Þetta sem er í gangi þarna núna er eitt það heimskulegasta sem ég hef séð!!

Löggan bara að handtaka alla sem opna munninn þarna á svæðinu :roll:
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby Benzer » Wed 23. Apr 2008 13:13

Aron Andrew wrote:Þetta sem er í gangi þarna núna er eitt það heimskulegasta sem ég hef séð!!

Löggan bara að handtaka alla sem opna munninn þarna á svæðinu :roll:


Er allveg 100% sammála þér
BMW 750 il
BMW Z3
Jeep Grand Cherokee V8 99 árgerð
Husaberg 450 Götuprjónarinn
User avatar
Benzer
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1094
Joined: Wed 08. Jan 2003 18:13
Location: Vestmannaeyjar

Postby bjahja » Wed 23. Apr 2008 13:15

Mér er alveg sama hvort þeir byrjuðu að grýta fyrir eða eftir úðann............að fá grjót í hausinn getur drepið mann.

Þeir eru alveg búnir að klúðra þessum mótmælum sínum, það tekur enginn mark á þeim núna.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Angelic0- » Wed 23. Apr 2008 13:17

Benzer wrote:Sá i sjónvarpinu að einn maður sagði sína skoðun og löggan kom og handtók hann..þetta eru ömurleg vinnubrögð..


Þetta er gott dæmi um lögreglumenn með minnimáttarkennd...

"GAS GAS GAS!" hvað meina þeir með þessu :?:

Skal alveg viðurkenna að þetta er alveg fáránlegt.... "Sturla" hringdi í nokkra félaga sína í morgun... og fékk þá til þess að mótmæla með sér...

Mér finnst reyndar ákvæði um hvíldartímana full ströng, heilbrigður maður á ekki í nokkrum vandræðum með að stunda vinnu aðeins lengur...

En að framkvæma svona mótmæla-aðgerðir án þess að tala hvorki við kóng né prest....

Ég var í sambandi við vörubílstjóra í bænum áðan, og flestir þeirra eru stórhneykslaðir á þessari framkomu. Nema auðvitað þeir sem að tóku þátt :!:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... lysadeild/ - þetta er reyndar mjög heimskulegt, ég er ekki að skilja hvað maðurinn hagnaðist á því að grýta grjóti í lögregluþjóninn :!:
Last edited by Angelic0- on Wed 23. Apr 2008 13:19, edited 1 time in total.
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby Dóri- » Wed 23. Apr 2008 13:18

ValliFudd wrote:http://www.visir.is/article/20080423/FRETTIR01/490263054&sp=1
Þetta er reyndar aðeins áður en slagsmálin byrjuðu, einn vörubílstjórinn kom EKKI vel út þarna :?



Þessi lögregluþjónn sem er næst myndavélinni þegar hann er að öskra er að MÍNU mati ALGER FÁVITI!! GERSAMLEGA ÞROSKAHEFTUR Í HAUSNUM!
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby fart » Wed 23. Apr 2008 13:19

Benzer wrote:
Aron Andrew wrote:Þetta sem er í gangi þarna núna er eitt það heimskulegasta sem ég hef séð!!

Löggan bara að handtaka alla sem opna munninn þarna á svæðinu :roll:


Er allveg 100% sammála þér


Menn sjá þetta greinilega með misjöfnum gleraugum. Mér fannst þetta virkilega vel gert hjá lögreglunni. Þeir fóru augljóslega beitn á ákveðna menn. Svo var þarna einn með kjaft og hver veit nema hann hafi líka verið á listanum. þá trylltist þessi feiti..

Anyway, hafið þið séð hvenrig mótmæli eru brotin upp allstaðar í vestrænum heimi? Þetta er bara baunir sem íslenska löggan er að gera miðað við það hvenrig menn græja svona vesen í "útlöndum"
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby Spiderman » Wed 23. Apr 2008 13:20

Benzer wrote:Sá i sjónvarpinu að einn maður sagði sína skoðun og löggan kom og handtók hann..þetta eru ömurleg vinnubrögð..


Það er nákvæmlega ekkert að þessum vinnubrögðum! Það er eitt að mótmæla og annað stofna lífi fólks í hættu. Ég var að enda við að lesa einhvern þráð um þetta á L2C þar sem menn voru alveg klárir að grýta lögguna til dauða o.s.frv. Ég er hræddur um að einhverjir af þessum fáfróðu einstaklingum myndu skipta um skoðun ef þeir myndu missa barn eða maka vegna þessara heimskulegu mótmæla þar sem sjúkraflutningum er ógnað dag eftir dag :roll:
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991

Nikolai Smolenski wrote: Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual
User avatar
Spiderman
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1117
Joined: Mon 09. Jun 2003 19:49
Location: Hafnarfjörður

Postby Aron Andrew » Wed 23. Apr 2008 13:24

Ég er alveg sammála því að grjótkastið og allt það er MEGA heimskulegt og vitlaust!

EEEN mér finnst bara viðbúnaður lögreglu alltof mikill, ég efa það að það væri nokkur maður þarna ennþá ef að víkingasveitin stæði ekki þarna með kylfur og skildi.
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 60 guests