Er þetta að verða komið hjá ykkur? einhver vandræði sem valda töfum um ókomnaframtíð?
Hjá mér er projectið komið úr skúrnum og út á götu. Er með hita vandræði eftir að hitaelement fór hjá mér.
Er þó búinn að panta allt nýtt í miðstöð eða þeas hita element/core, heater valve, mótstöðu og blower mótor. Þetta er á leiðinni til landsins og mun ég skella þessu í fljótlega, einnig keypti ég nýjan vatnslás ef að sá gamli stendur á sér og er að valda því að bíllinn hitar sig eftir átök og í lausagangi.... þá er næstum allt í kælikerfinu nýtt, viftukúpling, vatnsdæla, hosur, hitaelement fyrir miðstöð, vatnslás ... bara eftir að skipta út vatnskassanum... sem verður gert síðar.
Stefni ennþá á drift keppnina á bíladögum þannig að ég hef nægan tíma til að fiffa þessi smá vandræði.

