Samgönguráðherra er orðinn klikkaður

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Samgönguráðherra er orðinn klikkaður

Postby adler » Wed 16. Apr 2008 11:47

Enn einn skatturinn á bifreiða eigendur.

Þetta er nú fullmikið sagt og er frekar hæpin rök fyrir þessum skatti :

Þá segir að ætla megi að hluti óskoðaðra ökutækja í umferðinni sé í lélegu ástandi og geti skapað hættu.


Auðvitað er alveg í lagi að það séu einhver ákvæði og sektir við trassa skap en fyrr má nú rota en dauðrota.

Ástæða þess mjög oft að fólk fer ekki með bíla í skoðun á réttum tíma er oft sú að fólk á bara ekki fyrir skattinum og skoðunargjaldinu.

Þetta mun fjölga númerslausum bílum útum allann bæ sem verða svo hirtir af Vöku með tilheyrandi leiðindum og kostnaði.

Þetta er að verða algjörlega vitfyrt fávita eyja þar sem mest menntaða og jafnframt heimskasta fólkið stjórnar okkur hinum,því að menntun og gáfur fara ekki endilega saman .

http://visir.is/article/20080416/FRETTI ... 4841563656
gaui1969@gmail.com
e36 coupe 318is. Seldur
e36 convertible 325i
e21 1982 323i
e30 top chop
Image
User avatar
adler
Getawaybílstjóri
 
Posts: 657
Joined: Fri 18. Feb 2005 22:18

Postby Einarsss » Wed 16. Apr 2008 11:54

Mér finnst þetta fínt!

Þoli ekki að sjá óskoðaða bíla ... ágætis spark í rassinn fyrir þá sem eru að trasa að fara í skoðun.

Það er ástæða fyrir að bílar þurfi að fara í skoðun ... m.a að láta fagaðila yfirfara öryggisbúnað bifreiðarinar.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Postby saemi » Wed 16. Apr 2008 11:55

Ég er algjörlega sammála þeim ummælum sem þú vísar í.

Auðvitað er fullt af þessum ökutækjum sem aka um með gamla skoðun eða endurskoðunarmiða í ástandi sem er ekki með þeim hætti að bíllinn sé fullkomlega öruggur í umferðinni!

Ef fólk á ekki pening til að fara með ökutækið sitt í skoðun og borga bifreiðagjöldin, þá hefur það ekki efni á að reka bíl.

Fólk hefur séns, það má koma 2 mánuðum seinna með bílinn í skoðun en númerið segir til um þannig að það er nú strax eftirgjöf þar.

Ég sé ekkert að þessu frumvarpi, finnst það allt í lagi.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Angelic0- » Wed 16. Apr 2008 11:56

einarsss wrote:Mér finnst þetta fínt!

Þoli ekki að sjá óskoðaða bíla ... ágætis spark í rassinn fyrir þá sem eru að trasa að fara í skoðun.

Það er ástæða fyrir að bílar þurfi að fara í skoðun ... m.a að láta fagaðila yfirfara öryggisbúnað bifreiðarinar.


Mér finnst persónulega að þeir flestir fari ekki nógu gaumgæfilega í þau atriði sem að skipta höfuð máli, bremsur, hjólalegur, drifskaftsupphengjur, og svona dót sem að getur valdið hættu ef að það bilar !

Svo eru þeir að setja út á atriði sem að skapa minni hættu einsog filmur, ljós og svona pillerí... og senda menn út með grænan... stundum appelsínugulan :!:
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby fart » Wed 16. Apr 2008 11:57

t.d. fara margir ekki í skoðun að því að þeir hafa ekki efni á tryggingunum...

Sammála Sæma, if you cant take the heat - get out of the kitchen.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby xzach » Wed 16. Apr 2008 11:57

. . .

Ef þér langar ekki að láta skoða bílinn á réttum tíma. Legðu þá inn númerinn. Er alveg búinn að sjá nógu mikið af ruslahaugum keyrandi um göturnar óskoðaðir.
User avatar
xzach
Kassabílstjóri
 
Posts: 148
Joined: Sun 26. Jun 2005 21:41

Postby Danni » Wed 16. Apr 2008 12:02

Er til eitthvað umferðarslys skráð sem er að sökum óskoðaðs ökutækis?

Og hvað ætti þetta þá að miðast við? Akkurat mánuðinn sem er á númeraplötunni eða eftir þessa 2 mánuði umfram?
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby saemi » Wed 16. Apr 2008 12:06

Danni wrote:Er til eitthvað umferðarslys skráð sem er að sökum óskoðaðs ökutækis?

Og hvað ætti þetta þá að miðast við? Akkurat mánuðinn sem er á númeraplötunni eða eftir þessa 2 mánuði umfram?


Það var umræða um þetta fyrir stuttu í blöðunum. Þar var óskoðaður Jeppi sem stútaði öðrum bíl, losnaði af grindinni og straujaði inn í hinn. Þannig að já... það eru til svona dæmi.

Hitt er útfærsluatriði... ég á nú von á að maður hafi allavega þessa 2 mánuði upp á að hlaupa.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby BirkirB » Wed 16. Apr 2008 12:23

Og eftir þetta slys með jeppann var eitthvað hert á eftirliti með boddýfestingum...lennti í því með e28...

Mér finnst ekkert að þessu...ef það er eitthvað mikið að bílnum sem fær endurskoðun er bara að taka númerin af og laga eða henda haugnum...

En ég skil samt ekki alveg tilganginn með þessu, því númerin yrðu hvort sem er klippt af bílnum ef hann væri ekki lagaður...eina sem þetta gerir er að fá fólk til að drífa í því að laga bílinn og peningar til ríkisins?? sem er reyndar alveg fínt held ég
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Postby slapi » Wed 16. Apr 2008 12:27

Ég fékk einmitt Boðun í skoðun um daginn útaf trassaskap og þá var hætt að sekta fyrir það að fá boðun í skoðun. Kom alveg :s svipur á mig þegar konan á skoðunarstöðinni sagði að það væri hætt.

Fannst það verulega asnalegt , en þetta er kúl.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby kelirina » Wed 16. Apr 2008 12:29

Veit um tvö banaslys þar sem aðilar létu lífið vegna þess að bifreiðin sem þeir voru í fékk skoðun en í raun og veru átti hún að fá akstursbann.

Svo eru nú margir sem viljandi koma á tveggja ára fresti með bílana sína í skoðun. til að spara sér pening.
User avatar
kelirina
Kassabílstjóri
 
Posts: 185
Joined: Mon 13. Nov 2006 09:18

Postby Jónas » Wed 16. Apr 2008 14:33

Flott!

Ég þoli ekki að sjá druslur með 06 miða útum allan bæ með ónýtt púst, vírslitinn dekk(Hef sett miða á allnokkrar og bent á þetta).

Og það var eitt af banaslysunum í fyrra og þá var talað um að ástand á bílnum hefði verið eitt af hlutnum sem að olli dauðanum!

Herða þetta. Senda sekt heim til bílaeiganda eftir c.a. 2 mánuði framyfir lögbundna skoðun... segjum c.a. 20þúsund.

Ef þú getur ekki borgað 5000kr í skoðun og 50.000 kr í tryggingar áttu ekki að eiga bíl. Simple.
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Postby mattiorn » Wed 16. Apr 2008 14:57

Rosalega vorkenni ég þá fólkinu sem býr í Grímsey :lol: :lol: :lol:

Image

Ekki mikið verið að spá í þessu þar :lol:
User avatar
mattiorn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1908
Joined: Thu 13. Jan 2005 10:50
Location: Akureyri

Postby Aron Andrew » Wed 16. Apr 2008 15:10

mattiorn wrote:Rosalega vorkenni ég þá fólkinu sem býr í Grímsey :lol: :lol: :lol:

Image

Ekki mikið verið að spá í þessu þar :lol:


Það kom alltaf skoðunargaur út til Grímseyjar og fór yfir allt, en eins og sést á myndinni þá hefur enginn mætt síðan 2001 eða 2002...
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby UnnarÓ » Wed 16. Apr 2008 15:12

Mér finnst þetta fínt. Ég er farinn að taka eftir alltof mikið að óskoðum bílum á götunni, það er nú ekkert mikið mál að drullast með bílinn sinn einu sinni á ári í skoðun.. :roll: Fólk sem getur ekki séð af 5000 kalli á ári fyrir skoðun á ekkert að eiga bíl.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Next

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 62 guests