Í viðaukamálum hafa Vís verið laaaang liðlegastir þrátt fyrir forvarnarfulltrúann sinn, kannski allir hættir að hlusta á hana.
Vís = hringir og biður um viðauka sem dugar á kvartmílu, rallýkross og bíladögum og voila, færð viðauka sem dugar í hálft ár...
Sjóvá = Sækja um fyrir hvert skipti, getur ekki fengið 2 á sama tíma.. T.d. fyrir föstudag á kvartmílu og laugardag hjá Dóra.. stúpid..
Vörður = Á að kosta 8000 kr. og erfitt að komast undan því en einhverjir hafa sloppið..
TM = Eitt skipti í einu, hringja í hverri viku
Elísabet = Gerðu tilraun til að rukka 50 þús per viðauka í fyrra

Ég hringdi í einhvern Jón Pál þar á bæ og reifst við hann í svona klukkutíma í símann og hann gaf sig.. Sagðist ætla að leggja þetta fyrir stjórn og þetta myndi ekki kosta neitt þessa helgi sem þá var að renna upp. Svo hefur þetta ekkert kostað neitt eftir það heldur þar sem stjórnin hefur klárlega skítfellt þessa heimskulegu hugmynd Jóns Páls..
