Rakst á eintak af bílablaðinu Bílnum frá því í júní 1986. Það var eitthvað verið að ræða um verð á bílum frá þessum tíma hérna á öðrum þræði, en ég ákvað að koma með smá dæmi:
BMW 316 5 gíra. Verð 548.918 kr.
BMW 325i Sjálfsk. Verð 841.134 kr.
BMW 528i Sjálfsk. Verð 1.167.108 kr.
BMW 735i 5 gíra. Verð 1.485.898 kr.
BMW 745i Turbo Verð 1.777.548 kr.
BMW 635CSi 5 gíra. Verð 1.847.159 kr.
________________________________________
Benz 190E 5 gíra Verð 910.000 kr.
Benz 300E Sjálfsk. Verð 1.755.000 kr.
Benz 560SEL Verð 2.464.000 kr.
________________________________________
Merkilegt að Benz 300 og BMW 745 kostuðu nánast það sama! Hvorn myndi maður nú frekar vilja eiga, hmmm......



