SKO....
Ég var einmitt með sömu pælingarnar... þar sem flest sem ég geri vil ég hafa tipp topp eins og ég vil og í stíl.
Ég ákvað að finna mér LED stöðuljósaperur til þess að hafa í stöðuljósunum sem gefa hvít/bláan lit líkt og xenon-ið í aðalljósum og kösturum (í mínu tilfelli), þær reyndar eru þannig að þær hafa ekki sama viðnám og venjulegar halogen perur og þessvegna virka þær ekki alveg jafn vel í svona hátæknitækjum eins og BMW er og bíllinn skynjar þær því sem "sprungnar", og þá kemur upp merki í mælaborðinu. Hinsvegar veit ég ekki hvernig þetta er í þínum bíl og getur vel verið að það komi ekki svona villumelding...
En það sem ég gerði til að gera þetta töff var að kaupa Angel eyes CCFL hringi og þá kemur ekki melding um sprungna peru... núna finnst manni ljósalúkkið vera orðið flott... ætla reyndar að pósta myndum af þessu.
Það virkar alveg cool að vera með svona LED stöðuljósaperur en það gæti böggað þig að hafa meldinguna í mælaborðinu
Þetta kostar ekki neitt þannig um að gera að prufa bara...
_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
