Vörubílstjórar mótmæla

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby fart » Wed 02. Apr 2008 11:53

Jónas wrote:
fart wrote:...


Margir félagar í F4x4 hafa sínar tekjur af ferðamönnum og jeppunum sínum.

Einnig eru menn skiljanlega fúlir þegar að kostnaðurinn við hobbíið þeirra hækkar svona mikið.

Sennilegast myndu einhverjar raddir heyrast í golfmönnum ef vallargjaldið myndi hækka um 60%


Eru þeir sem hafa tekjur sínar af því að aka bíl ekki atvinnubístjórar.

Já.. ég myndi fara niður á alþingi og slá kúlur í rúðurnar ef að ríkið myndi hækka gjöld á golfkylfum.. :? :roll:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby ValliFudd » Wed 02. Apr 2008 12:31

Það var reyndar fast skot á einn jeppakarl í gær, sá einhver það? :lol:

Fréttamaður við jeppakall:
"Nú spyrja sumir sko, við stöndum hérna uppi á svona risa jálkum, er þetta ekki bara bruðl að vera á svona stórum bílum, getiði ekki sjálfum ykkur kennt, hvað þetta er dýrt?"

Jeppakall:
"Ja, ég veit það ekki, er ekki bruðl að fara til Köben? Hvað kostar það?"

:lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby fart » Wed 02. Apr 2008 12:39

ValliFudd wrote:Það var reyndar fast skot á einn jeppakarl í gær, sá einhver það? :lol:

Fréttamaður við jeppakall:
"Nú spyrja sumir sko, við stöndum hérna uppi á svona risa jálkum, er þetta ekki bara bruðl að vera á svona stórum bílum, getiði ekki sjálfum ykkur kennt, hvað þetta er dýrt?"

Jeppakall:
"Ja, ég veit það ekki, er ekki bruðl að fara til Köben? Hvað kostar það?"

:lol:


Yes.. ! næstu mótmæli verða þeir sem stunda utanlandsferðir, mótmæla því líka.

Það gengur ekki að hætta við árlegu fyllerísferðina til köben maður. :lol: Helst fara á jeppanum suður og láta bóna hann í leiðinni.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby grettir » Wed 02. Apr 2008 12:39

Það er svo greinilegt á aðgerðaleysi stjórnvalda að það eru ekki kosningar í nánd.

Verandi hlynntur þessum aðgerðum í byrjun er ég nú að vera nett pirraður á þessu. Ég er búinn að eyða allt of mörgum klukkutímum í bílnum þessa viku sem ég hefði getað verið við vinnu.
Ég væri í marga mánuði að vinna upp vinnutapið með lægra bensínverði ef það þá lækkar eitthvað, sem ég efast stórlega um.

Snúum þessu aðeins við og mig langar að beina ímynduðum aðstæðum að atvinnubílstjórum sem stunda þetta spjall:

Ef ég væri að mótmæla bágum kjörum, háu matvælaverði eða hrokafullum ráðherrum og myndi gera það með því að loka einhverri malarnámu eða til dæmis hringtorginu við Rauðavatn og koma þannig í veg fyrir að trukkabílstjórar gætu komist til vinnu. Ég myndi kannski hafa af þeim heila ferð yfir daginn eða tvær.
Væruð þið hrifnir?

Þessi mótmæli virka nefnilega ekki því þau beinast gegn almenningi. Og almenningur lætur þetta bara fara í taugarnar á sér og kýs svo Sjálfstæðisflokkinn aftur í næstu kosningum.
Þetta vita þeir sem sitja á þingi.

Þeir sem halda að þingmenn og ráðherrar hafi einhverja samúð með almenningi ættu að leita sér hjálpar.
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby ValliFudd » Thu 03. Apr 2008 10:46

Textavarp.is
Ekkert lát á hækkun hráolíuverðs
Hráolíuverð á heimsmarkaði snarhækkaði
um næstum fjóra dollara á tunnu í gær
og var komið upp í tæpa 105 dollara á
tunnu þegar viðskiptum lauk í New York
í gærkvöld. Ástæðan er sögð vera
minnkandi bensínbirgðir í
Bandaríkjunum. Norðursjávarolía stóð í
tæpum 104 dollurum í lok viðskipta á
Lundúnamarkaði.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðeigenda, segir
að svo virðist sem ekkert lát sé á
þessum hækkunum. Hann segir að svo
virðist sem enginn geti spáð rétt fyrir
um þróun mála. Það eina sem virðist
vera öruggt er að olíuverð heldur áfram
að hækka.
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Aron Andrew » Thu 03. Apr 2008 10:48

Fínt að leggja sig á Kringlumýrarbrautinni í morgun :)
BMW E46 318i Touring
User avatar
Aron Andrew
Formúlubílstjóri
 
Posts: 7764
Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Location: Kópavogur

Postby ValliFudd » Fri 04. Apr 2008 09:38

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/

Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby Kull » Fri 04. Apr 2008 10:25

Þó einhver af olíufélugunum lækki verð hluta úr degi þá er ekki þar með sagt að þeir séu ekki að mokgræða á okkur neytendum með háu bensínverði. Allavega virðast þeir ansi duglegir að opna fleiri og fleiri sjálfsafgreiðslustöðvar, varla væru þeir að því ef hagnaðurinn væri ekki mikill.
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Postby Zyklus » Fri 04. Apr 2008 12:06

ValliFudd wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/

Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?


Það er greinilegt að olíufélögunum hefur tekist ætlunarverk sitt með þessari lækkun um daginn...
Núna sem sagt eru olífélögin með okkur í liði (riiiiight...). Þeir lækka í einn dag og hinn týpíski íslenski neytandi gleypir auðvitað við því og gleymir því hvernig búið er að svína á honum ár eftir ár, núna eru olíufélögin hetjurnar.
Það er ekki skrítið að það sé enginn virk samkeppni á Íslandi þegar neytendur eru svona svakalega einfaldir.

Í rauninni ættu vörubílstjórar að beina mótmælum sínum að olíufélögunum í stað þess að teppa hinn almenna borgara í umferðinni.

Er ríkið að okra eins mikið og olíufélögin vilja vera láta?

Skv. þessum upplýsingum er ríkið að taka til sín 47,5% af útsöluverðinu (miðað við að verð á lítra sé 151,9 kr.) sem er hið minnsta á Norðurlöndunum. Auk þess fá bílstjórar innskattinn endurgreiddan þannig að hlutur ríkisins er í raun bara rúm 36%.

Þannig að sök hins háa bensínverðs liggur kannski ekki bara hjá ríkinu?
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby ///M » Fri 04. Apr 2008 12:20

Held að fólk ætti líka aðeins að vakna og átta sig á því að bensín er ekkert dýrt hérna miðað við löndin í kringum okkur. Og ég tala nú ekki um þegar tekið er í myndina fólksfjöldi og að við búum á eyju.
2016 BMW X3 sDrive28i
///M
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3828
Joined: Fri 06. Jan 2006 22:07
Location: California

Postby zazou » Fri 04. Apr 2008 12:34

Zyklus wrote:
ValliFudd wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/

Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?


Það er greinilegt að olíufélögunum hefur tekist ætlunarverk sitt með þessari lækkun um daginn...
Núna sem sagt eru olífélögin með okkur í liði (riiiiight...). Þeir lækka í einn dag og hinn týpíski íslenski neytandi gleypir auðvitað við því og gleymir því hvernig búið er að svína á honum ár eftir ár, núna eru olíufélögin hetjurnar.
Það er ekki skrítið að það sé enginn virk samkeppni á Íslandi þegar neytendur eru svona svakalega einfaldir.
...


Útskýrðu eitt fyrir mér... af hverju getur Atlantsolía þá ekki verið með afgerandi lægra verð fyrst að hin olíufélögin okra svona svert á okkur?
Mér hefur aldrei þótt AO vera nógu lágir að ég nenni að standa í því að taka bensín hjá þeim.


///M wrote:Held að fólk ætti líka aðeins að vakna og átta sig á því að bensín er ekkert dýrt hérna miðað við löndin í kringum okkur. Og ég tala nú ekki um þegar tekið er í myndina fólksfjöldi og að við búum á eyju.


Varðandi lægsta verð á norðurlöndum, hvaða gengi er notað? Danska í 16, norska í 15? Ég þekki ekki til en bendi á það að þegar gengið er í svona rugli þá eru hlutir í útlöndum hrikalega dýrir.

Ef krónan hefði ekki rýrnað um 25% þá erum við að tala um lítraverð uppá 140 ekki 187 í Noregi, 128 ekki 171 í Danmörku og 118 ekki 158 í Svíþjóð.
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Postby grettir » Fri 04. Apr 2008 12:35

Zyklus wrote:
ValliFudd wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/

Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?


Það er greinilegt að olíufélögunum hefur tekist ætlunarverk sitt með þessari lækkun um daginn...
Núna sem sagt eru olífélögin með okkur í liði (riiiiight...). Þeir lækka í einn dag og hinn týpíski íslenski neytandi gleypir auðvitað við því og gleymir því hvernig búið er að svína á honum ár eftir ár, núna eru olíufélögin hetjurnar.
Það er ekki skrítið að það sé enginn virk samkeppni á Íslandi þegar neytendur eru svona svakalega einfaldir.

Í rauninni ættu vörubílstjórar að beina mótmælum sínum að olíufélögunum í stað þess að teppa hinn almenna borgara í umferðinni.

Er ríkið að okra eins mikið og olíufélögin vilja vera láta?

Skv. þessum upplýsingum er ríkið að taka til sín 47,5% af útsöluverðinu (miðað við að verð á lítra sé 151,9 kr.) sem er hið minnsta á Norðurlöndunum. Auk þess fá bílstjórar innskattinn endurgreiddan þannig að hlutur ríkisins er í raun bara rúm 36%.

Þannig að sök hins háa bensínverðs liggur kannski ekki bara hjá ríkinu?


Nákvæmlega!
Og þessi lækkun átti að sýna okkur hvernig verðið væri ef krónan væri ekki búin að falla svona rosalega, en það þarf enginn að segja mér að bensínið sem verið var að selja hafi verið keypt á svo lélegu gengi.
Ef svo er, þá ættu olíufélögin að ráða sér nýjan innkaupastjóra. Til dæmis þennan sem verslar inn fyrir Ikea?
318iA - 290.000 km and stopped counting
540 e39 Shadowline - Fjölskyldubíllinn
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Zyklus » Fri 04. Apr 2008 13:04

zazou wrote:
Zyklus wrote:
ValliFudd wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/04/loka_fyrir_umferd_oliubila/

Jæja, olíufélögin lækkuðu verð til að sýna stuðning sinn í verki en hvað gera jeppakarlarnir? Trufla starfsemi þeirra sem eru með þeim í liði? Nú er ég alveg hættur að skilja?


Það er greinilegt að olíufélögunum hefur tekist ætlunarverk sitt með þessari lækkun um daginn...
Núna sem sagt eru olífélögin með okkur í liði (riiiiight...). Þeir lækka í einn dag og hinn týpíski íslenski neytandi gleypir auðvitað við því og gleymir því hvernig búið er að svína á honum ár eftir ár, núna eru olíufélögin hetjurnar.
Það er ekki skrítið að það sé enginn virk samkeppni á Íslandi þegar neytendur eru svona svakalega einfaldir.
...


Útskýrðu eitt fyrir mér... af hverju getur Atlantsolía þá ekki verið með afgerandi lægra verð fyrst að hin olíufélögin okra svona svert á okkur?
Mér hefur aldrei þótt AO vera nógu lágir að ég nenni að standa í því að taka bensín hjá þeim.



///M wrote:Held að fólk ætti líka aðeins að vakna og átta sig á því að bensín er ekkert dýrt hérna miðað við löndin í kringum okkur. Og ég tala nú ekki um þegar tekið er í myndina fólksfjöldi og að við búum á eyju.


Varðandi lægsta verð á norðurlöndum, hvaða gengi er notað? Danska í 16, norska í 15? Ég þekki ekki til en bendi á það að þegar gengið er í svona rugli þá eru hlutir í útlöndum hrikalega dýrir.

Ef krónan hefði ekki rýrnað um 25% þá erum við að tala um lítraverð uppá 140 ekki 187 í Noregi, 128 ekki 171 í Danmörku og 118 ekki 158 í Svíþjóð.


Gæti útskýringin ekki einmitt verið sú að íslenskir neytendur eru almennt ekki nógu duglegir að verðlauna þá sem bjóða betra verð? Þess vegna græðir AO ekkert á því að lækka verð því salan eykst ekki nægjanlega mikið til að vega upp á móti lægra verði. Þess vegna fylgja þeir bara stóru aðilunum á markaðnum.
Svo má líka spyrja sig hvert væri bensínverðið ef AO væri ekki á markaðnum?

Og telur þú að gengið hafi verið eðlilegt eins og það hefur verið undanfarin ár?
Ef eitthvað er þá er gengið nær því að vera „eðlilegt“ en það hefur verið.
Bendi á tvær greinar sem voru sendar inn á annan þráð hérna.

http://www.visir.is/article/20080403/SKODANIR04/104030163/-1/SKODANIR

http://visir.is/article/20080327/SKODANIR04/103270101&SearchID=73313552094889
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby Axel Jóhann » Fri 04. Apr 2008 13:14

Ég man nú alveg þegar ég var að röfla yfir því að bensínlíterinn kostaði 113kr. :lol:
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Postby Einarsss » Fri 04. Apr 2008 13:18

EF að bensín væri teljanlega ódýrara hjá AO myndi ég fara þangað. Tekur því ekki að fara á orkuna eða AO fyrir 2kr minna á líter ... ef það væri um 15kr ódýrara en annarsstaðar þá er ég viss um að fólk myndi eingöngu versla við þá og ættu þeir þá að græða meira á því að fjöldinn sem tekur eldsneyti hjá þeim myndi stækka og þeir dæla út fleiri lítrum.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 5 guests