Einsii wrote:Væri ekki bara málið að láta fyrsta trukkinn draga svona sviðsvagn.. Vera með hljómsveit og létt hljóðkerfi og gera úr þessu skemmtileg mótmæli, fá allt fólkið út úr bílunum og gera bara algert caos einhverstaðar þar sem allir myndu sjá það !
Þetta ætti ekki að vera erfitt í framkvæmd, og væri mikið skemtilegra heldur en bara hanga inní bíl bíðandi eftir að hnúturinn leystist.
Og þá væri almeningur líka mikið virkari þáttakandi.. Hópast út á götu og hlusta á stutta tónleika eða bara what ever
Þá virkar þetta ekki eins og MÓTMÆLI. Meira bara eins og einhver... skemmtun.
Þeir verða að sýna HVAÐ gerist EF þeir HÆTTA bara gjörsamlega að keyra.
Að mínu mati ættu þeir bara frekar að hætta að starfa í 1-2 daga eins og flest öll verkföll eru.
Þeir sem hafa áhuga á mótmælum ættu að líta til Frakklands, konungslandi mótmæla - enda kunna þeir fátt annað en að búa til hraðlestar, rauðvín osta og mótmæli.


