Eggjanúðlur með kjúkling
Snilldarréttur sem slær alltaf í gegn á mínu heimili, mjög einfalt og tekur max 15 mínútur.
1 pakki núðlur núðlur (Blue Dragon)
1 dós niðursoðin wok grænmetisblanda (Blue Dragon)
400-500g kjúklingur (Ég nota alltaf foreldaða kjúklingastrimla, mjög þægilegt)
3-4 egg
Slatti af ostrusósu (Blue Dragon)
Soyasósa
Engifer, malað
Byrjar á því að henda núðlunum í stóran pott með sjóðandi vatni, sýður þær eftir leiðbeiningum á pakkanum. Þvínæst hitarðu olíu í Wokpönnu (eiginlega nauðsynlegt að vera með Wokpönnu) og hendir kjúklingnum á þegar olían er orðin vel heit og hitar hann vel, skellir svo smá slatta af soyasósu yfir, leyfa því að malla í smástund. Á meðan tekurðu Wok grænmetisblönduna, hellir henni í sigti og skolar með köldu vatni, hún fer svo saman við kjúklinginn. Hrærir vel saman og kryddar svo með engifer. Svo hendirðu þessu öllu saman í einhverja skál og geymir.
Nú ættu núðlurnar að vera tilbúnar. Þá notaru sömu Wok pönnuna, og hrærir 3-4 egg (ég set 4) í svona scramble. Svo seturðu núðlurnar saman við eggin og blandar vel saman. Þvínæst fer kjúklingurinn og grænmetið saman við núðlurnar ásamt slatta af ostrusósu (má ekki sleppa henni!), magnið fer í rauninni eftir hve blautan þú vilt hafa réttinn.
Gott er að hafa með þessu hrísgrjón (döhh(hrisgrjon fyrir þá sem skilja ekki ritskoðunina hérna)) og Blue Dragon sweet chili dipping sauce.
Þetta er alveg lygilega gott og ætti að vera nóg fyrir fjóra, eða einn í 2-3 daga.
EDIT
Okei... afhverju í fjandanum er hrisgrjon ritskoðað sem hrísgrjón hérna???

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
