srr wrote:
///M wrote:
bebecar wrote:
Það væri svo kannski mál fyrir aðra könnun að sjá hvað heildarpakkinn með rekstri bílsins/bílanna kostar svo...

óvitlaust... held að það sé oft ódýrar að eiga nýlegan bíl á láni en gamlan haug sem er alltaf eitthvað að og eyðir fullt af bensíni

Ég verð að mótmæla þessu allverulega.
Það sem gamlir bílar eyða er ekkert mikið meira en nýlegir bílar, sérstaklega ef öllu er rétt viðhaldið.
Viðhald eldri bíla er miklu minna en afborganir og afföll af nýjum bílum.
Svo í mínu tilviki.....
Borga ég engin bifreiðagjöld og 20.000 kr í tryggingar af BMW 518 '82.
Endilega reyndu að segja mér að það sé dýrari bíll í rekstri en nýlegur BMW

en málið er nú að það eru bara ekki allir menn í að nostra sona við þetta eins og þú, flestir vilja nú helst ekki einu sinni þurfa dæla á bílana,
ég er nú búinn að eiga orið ófáa bílana, og alveg allavegana kvikindi á öllum aldri og af öllum stærðargráðum.
ég pantaði mér árið 05 glænýja mözdu3 sport, 2.0l sumir muna kannski eftir henni, ég borgaði 27k á mánuði og eitthvað klink í tryggingar, bíllin í abyrgð eyddi engu bilaðí ekkert og svo framvegis.. þetta voru minnstu útgjöld sem ég hef nokkurntíman lagt út fyrir bíl í rekstri, en samt var þetta nýr rúmlega 2.7m kr nývirðik þá, svo reyndar seldi ég bílin notaðan ári seinna á 400k meira en ég borgaði fyrir hana nýja.. sem gerir þett af ennþá betri bíl fyrir budduna
svo er hinsvegar annað mál.. að ég entist ekkert á sona bíl, ég get ekki veriíð á sona sálarlausum búðarkerrum..
dýrasti bíll í rekstri hinsvegar sem ég hef átt var 730 v8 bmw.. bíl sem ég keypti á fáránlegu verði og átti skudlaust, reksturnn einn og sér var bara eins og að reka geimskutlu..
það var gerð könnun á þessu fyrir dálittlu, þar sem að tveir menn voru látnir kaupa sér bíla, annar þeirra fékk sér gamlan benz einhvrn, einhvern venjulegan bara, og hinn avensis á á 100% láni,
eftir ár þegar það voru bornar saman nákvæmar skrár yfir öllu sem hefðu farið í bílin var avensis-sin alveg lygilega mikið ódýrar í rekstri á ársbasis, þá er ég að tala um alvöru peningaupphæð