bimmer wrote:
Viktor, Viktor, Viktor.... af hverju gerðirðu bara ekki eins og þér var sagt?
Það er nú einmitt það sem að ég var að gera, ég var að fara að færa bílinn minn.... alveg eins og lögreglan fyrirskipaði

NEI, en hvað gerist þá, dyrnar á bílnum opnast og ég fæ kjaftshögg í andlitið.... FRÁ LÖGREGLUÞJÓNI

Við þetta bregður mér og held mér föstum við armpúða á milli sætanna.... þá rífa þeir utan af mér jakka og bol sem að ég var í... í kjölfarið af því hafði ég áttað mig á því að þeir voru að "reyna að handtaka" mig.. og ákvað ég því að sleppa takinu af armpúðanum og sagði "Ég ætla að koma út..." við það hætta þeir að eyðileggja fötin mín, ég ætla að stíga út úr bílnum, en þá er tekið á mér kæfingatak og rétt í kjölfarið á því fæ ég tvö olnbogaskot í nefið og kinnina...
Þar á eftir er ég "svæfður" og settur í járn.... rankaði samt við mér ennþá í malbikinu, með hné annars lögreglumannsins í gagnauganu...
Hífður upp á járnunum og settur inn í lögreglubíl.... þið getið rétt ýmindað ykkur hversu þægilegt það er fyrir 115kg mann

Finnst ykkur þetta rétt vinnubrögð

Og... það sem að mér finnst enn verra... er að þegar að Pabbi kom út og spurði hvort að þessi vinnubrögð lögreglunnar væru lögmæt var hann "mace-aður".... hann náði að hlaupa inn heima, en þá sparka 3 sérsveitamenn upp hurðinni hérna og halda áfram að sprauta piparúða á hann og konuna hans, og handtaka hann inni í eldhúsi hérna heima hjá honum

BRUTAL

Þetta mál verður ekki látið kyrrt liggja

Mér til málsbóta má geta þess að ég lagði bílnum mínum c.a. 50 metra frá athafnarsvæði lögreglunnar og því gat ég ekki verið að hindra framgang réttvísinnar eða störf lögreglunnar
