Áður en þetta verður fært þá langar mig að leggja fáein orð í belg.
Að mínu mati varðar málið fleiri en meðlimi þar sem hér er fjöldi fólks sem væri til í því að koma að starfinu ef núverandi fyrirkomulags nyti ekki við.
Ég held að það sé bara komið á daginn sem hefði átt að gera í upphafi og það er að stofna formlegann BMW klúbb þar sem kosið er í stjórn eins og hjá Stjörnunni, nú eða eins og hjá BMW mótorhjólaklúbbnum en þar er ég t.d. skráður félagi og hef mætt á stjórnarfundi (þegar ég hef verið á landinu).
Ég myndi gera slíkt hið sama hér ef ég hefði kost á því.
Formlegur klúbbur hefur ýmsar skyldur og tækifæri til að gera mun betur. Öll þau fríðindi sem hafa verið í boði hér, auk ferða erlendis, merki fyrir klúbbfélaga, stöðu innan alþjóðasamtaka BMW-klúbba og áhrif þar.
Ég held að þetta sé það sem Sveinbjörn myndi vilji sjá gerast og mér sýnist Sæmi vera það veikur fyrir lýðræðishliðinni að hann gæti kannski hugsað sér það líka.
Ég tel það hreinlega vera tímaspursmál hvenær formlegur klúbbur verður stofnaður og þá myndi þessi félagsskapur, eins góður og hann er, annaðhvort sameinast nýja klúbbnum eða fara í beina samkeppni með tilheyrandi ríg.
Ef menn vildu hinsvegar feta þessa leiðina er óleyst hvernig menn ætla að launa þeim sem eiga bmwkraft og hafa kostað til vinnu, verðmætum og fleiru til þess að halda þessu gangandi - en það hlýtur að vera hægt að finna út úr því og er stjórnin líklega fullfær um það (þetta eru þeirra peningar hvort eð er eða hvað?)
Kjarninn í gagnrýninni hefur þannig ekkert með fólkið að gera heldur með formið að gera. Hér hafa stjórnendur staðið sig mjög vel og það í langan tíma (með einstaka hikstum eins og eðlilegt er). En á meðan formið er svona þá verður þetta aldrei fullgildur BMW klúbbur og ekki heldur þó fyrirkomulaginu verði breytt í þá átt sem Sveinn nefnir.
http://www.bmwhjol.is/
Væri svona nokkuð ekki eitthvað sem þið vilduð hafa fyrir bílana ykkar? Og þetta er klúbbur fyrir BMW farartæki sem B&L virðist ekki einu sinni ætla að flytja inn (í bili).