bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Wed 25. Jun 2025 10:37

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 42 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Wed 12. Mar 2008 18:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Hann sagði á FM að hann væri alin upp í sveit og þar hafi honum verið kennt að grípa til eigin ráða :lol:

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 12. Mar 2008 19:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Posts: 3154
Location: Akureyri 603
Það var nú frétt um þetta í DV í gær (ekki besti miðillinn) en þar sagðist grantarinn hafa farið varlega í að færa bílinn, skil ekki alveg hvernig rúðubrot passa þar inn í. En það er frekar furðulegt að stæðin séu ekki merkt í þessum kjallara finnst mér. Og svona að lokum þá er hann algjör pappakassi og hálfviti, þekki engan hér fyrir norðan sem sá á eftir honum úr bænum á sínum tíma, algjör egóstrumpur.

_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 12. Mar 2008 20:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34
Posts: 2847
Þar sem ég vinn við að keyra er ég alltaf að lenda í fávitum sem eru að leggja fyrir mig þegar ég er í vörumótökustæðum....

LANGAR MIG SVO MIKIÐ AÐ BAKKA OG BAKKA OG BAKKA Á HELVÍTIS SKJÓÐINN SEM ER FYRIR MÉR. En þar sem vinnubíllinn er Renault og getur tekið mig mánuð að fá varahluti í hann þá anda ég bara og bíð..

En allaveganna þá bjó ég uppí hólahverfi í Breiðholti þegar ég var 12 ára og þar var svona bílastæðamál alltaf hreint. Ég bjó í blokk sem voru þrír stigagangar í 8-10-12 ég bjó í 10 og var skúrinn okkar innbyggður í blokkinu og samkvæmt skipulagi áttum við rétt á að leggja fyrir utan skúrinn en fólkið sem bjó í stigagang 8 var alltaf að leggja þannig að við komumst ekki inní skúrinn hjá okkur. Man ekki hversu oft við þurftum að vera að hringja í vöku og láta draga bíla í burtu.

Annars man ég alltaf eftir því að ég var inní skúr að bóna bíl sem frændi minn átti og búinn að vera þar inní í um 4-5 tíma að þrífa, bóna, ryksuga og gjörsamlega taka bílinn í gegn. Og ætlaði svo að opna stóru hurðina til að henda bílnum út og taka næsta bíl inn þá hafði einn af fávitunum í stigagang 8 lagt fyrir hurðina á skúrnum hjá okkur og ég opnaði hurðina beint í hliðina á helvítis bílnum :lol: þá splunkunýr Audi. En greyið sat uppi með þetta þar sem hafði engan rétt á því að leggja þarna

_________________
Suzuki Sidekick 33" 1977


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 12. Mar 2008 21:02 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28
Posts: 2399
off topic:

Bílastæða mál gera mig :burn:

ENDALAUST hvað fólk getur verið svívirðilega ömurlegt við mann, hóta barsmíðum, kallandi hina og þessa nöfnum sem enginn á skilið og sér í lagi ekki vegna bílastæða og málin eru leidd svo langt að báðir aðilar eru með hóp af vel bústnum karlmönnum ef annar aðilinn skyldi berja frá sér.

Fólk er að túlka reglur og samninga sér í hag þrátt fyrir feitletranir og orðalag sem að viðvaningar skilja. Hver skilur ekki orðið "SAMEIGINLEGT" þar sem lóðin er teiknuð stæði fyrir stæði og merkt inn á myndina ?

Rökin sem ég hef orðið vitni að eru: "ÞETTA ER SVONA VEGNA ÞESS AÐ ÞETTA HEFUR ALLTAF VERIÐ SVONA", þ.e. vegna þess að fyrri eigendur höfðu ekki götts til að gera neitt í málunum.

on topic:

Hvað Grantarann varðar þá held ég að betri lausn hafi verið til, það er bara svo einfalt.

En hey, hvað gerir maður ekki fyrir bílastæði ? :lol:

Kv. reiði gaurinn.

_________________
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Mar 2008 00:20 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Sat 25. Aug 2007 02:56
Posts: 930
Bjarkih wrote:
Það var nú frétt um þetta í DV í gær (ekki besti miðillinn) en þar sagðist grantarinn hafa farið varlega í að færa bílinn, skil ekki alveg hvernig rúðubrot passa þar inn í. En það er frekar furðulegt að stæðin séu ekki merkt í þessum kjallara finnst mér. Og svona að lokum þá er hann algjör pappakassi og hálfviti, þekki engan hér fyrir norðan sem sá á eftir honum úr bænum á sínum tíma, algjör egóstrumpur.

Sé það svo fyrir mér. Allir verið komnir með nóg af hrokagikknum og hann hefur flúið í bæinn og ætlað að reyna að bæta ráð sitt. Sem hefur ekki tekist betur en þetta :P

Ibzen wrote:
þessi gaur sem lagði í stæðið og fleiri náttúrulega hljóta að hugsa sig um tvisvar næst þegar þeir leggja í stæði annarra.

Image[/img]


Fáránlega góð samlíking hjá þér að setja videoið :D
En annars þegar þú nefnir að menn hugsi sig bara um tvisvar næst , það finnst mér ekki ganga þannig fyrir sig.
"Ef að ég myndi taka upp á því að bömpa alltaf á bílinn sem væri fyrir framan mig, ef að hann væri seinn að taka af stað á ljósum, þá þýddi það ekkert að fólk ætti að hugsa sig um tvisvar áður en að það tæki seint af stað."
Það væri annað mál ef að maðurinn hefði búið í blokkinni í áratug og vissi uppá hár hvað hann væri að gera.


Last edited by Brútus on Thu 13. Mar 2008 00:45, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Mar 2008 00:31 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Feb 2007 20:43
Posts: 580
Þetta var nú þannig að Arnar kemur heim úr vinnu og þá er "druslan" í stæðinu hans, hann aðhefst ekkert frekar í málinu.
Daginn eftir fer hann til vinnu og þá er bíllinn enn í hans stæði og ennþá þegar hann kemur heim úr vinnu.
Þá gengur hann um stigaganginn dinglandi bjöllum og spyrjandi fólk hvort það vissi hver ætti bílinn, enginn kannaðist við það svo að hann gerði ekkert meira úr því.
Þriðja daginn var bíllinn enn í stæðinu hans þegar hann fer í vinnu og þegar hann kemur úr vinnunni, held það hafi verið þá sem hann fór "varlega" í það að færa bílinn... heyrði þetta frá manninum sjálfum


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 13. Mar 2008 02:46 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 25. Jun 2006 18:08
Posts: 64
djöfull getur maður orðið pirraður þegar fólk leggur í stæði sem er fyrir mann sjálfan.. eins og að leggja fyrir vörumótökum, eða leggja illa þannig að stórir bílar eiga erfitt með að komast um götuna.

um daginn voru svona 15bílar lagðir í rútustæði upp í bláa lóni þannig ég gat hvergi lagt. nema fyrir þá , enda hika ég ekki við það , ekki mitt mál ef fólk getur ekki tekið eftir merkingum

eins með upp á flugvelli þar leggur fólk nú bara hvar sem er, enda nánast daglega legg ég í stæði ætluðum rútum þar og svo heppilega vill til að þá kemst fólk ekki inn í bílana sína því að þau leggja á svona "umferðareyjum" sem eru afmörkuð pláss á milli rútustæða sem eru til þess að maður geti lestað rúturnar af farangri, ég legg bara í mitt merkta stæði og gæti ekki verið meira sama þó að fólk komist ekki í burtu eða eitthvað

lagði í dag í rútustæði beint fyrir aftan bíl sem var lagt undir bannað að leggja skilti , í miðri svona rennu til að geta keyrt burtu úr rútustæðunum, þannig að sá náungi komst hvergi..

stundum spyr maður fólk hvort það sé með ökuskírteini, leggjandi undir bannað að leggja skiltunum.. fólk er svo dofið


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Mar 2008 10:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
Image

:lol:

Spurning um að gefa Arnari nokkra svona miða til að nota.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Mar 2008 10:36 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 03. Nov 2003 18:40
Posts: 925
Location: @ the spot...
:lol: djöfull er þetta góður miði...

_________________
e21 315 "83"


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Mar 2008 10:50 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Wed 21. Dec 2005 23:48
Posts: 827
Obbosí, þar sem stendur "enn" í textanum á að standa "en"

Hvurslags er þetta


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Mar 2008 11:02 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Sun 27. Aug 2006 12:39
Posts: 35
Finnst fólki virkilega réttlætanlegt að valda eignatjóni einungis vegna þess að bíl er lagt vitlaust?
Væri ekki skárra að til dæmis að skilja eftir miða á rúðuþurkunni og gefa öðrum smá séns? Setjið ykkur í spor þess sem lennti í tjóninu, vilduð þið vilja koma að bílnum ykkar með brotnar rúður af því gerðuð örlítil mistök?!

_________________
528 E39


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 14. Mar 2008 11:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Rofl og var stæðið ekki einusinni merkt?!?!

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 42 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group