Þetta er semsagt 1997 árgerðin af 320I með 6cyl vélinni, ekinn um 200 þús. Hann hefur topplúgu og kastara sem setja ágætis svip á bílinn.
Bíllinn er sjálfskiptur með rafmagni í rúðum að framan og rafmagni í speglum.
Bíllinn er með þjónustubók frá upphafi og hefur verið haldið mjög vel við. Fyrri eigandi skipti um bremsudiska og klossar eru í mjög fínu standi.
Þetta er mjög heill bíll og mjög góður í akstri, skilar öllum 150 hestunum ágætlega í götuna ennþá.
Ásett verð 500 þúsund.
Hægt að hafa samband hér eða í síma 897-0888.

