Alveg rólegur á að ætla nota slípirokkinn.
(Ég veit að þú ert að grínast með þetta)
Þótt þessar vélar líti svipað út þá er virknin allt, allt önnur.
Algengt er að lítill slípirokkur snúist á í kringum 11.000 rpm en bónvél er svona í kringum 2000-3000 rpm.
Mér sýnist þetta vera lítil vél sem er þarna á þessari ebay síðu.
Og svo annað, þetta er á .com - bandaríkin, verður að muna að þeir eru með 120 volt á meðan við erum með 230 volt eins og evrópa, kaupa frekar svona dót frá .uk eða .de eða álíka.
eina ef þú kaupir frá .uk þá gætir þú fengið breska kló og þyrftir að breyta því en það er ekkert big deal.
Ég er sjálfur búinn að vera leita fyrir sjálfann mig, bara til að hafa í bílskúrnum heima. Það sem ég hef fundið er að N1 (Bílanaust) uppí á höfða er með eina svona vél 1200w og kostar minnir mig 35 þús kall. Og svo Poulsen eiga eina svipaða á 40 þús kall (getur verið að ég sé að rugla verðunum) og Pousen eiga líka fyrir loft, tvær stærðir (sýndist samt að uppgefin geta vera mjög svipuð) önnur kostaði 20 þús kall og hin 30 þús kall.
Þær eru sirka helmingi léttari en rafmagnsvélarnar en ég hef enga hugmynd um hvað þú þarf að vera með öfluga loftpressu til að vera með svona í lofti.
Svo fann ég eina á tilboði í Málningarvörur í Lágmúla á sirka 36 þús kall minnir mig, með eitthvað af púðum, grófum og fínum massa, bóni og svo einhverju efni til að setja á eftirá og eitthvað pínulítið meira af stuffi.
Svo endaði ég á að panta mér eina á ebay.de
Það er sirka vika síðan ég pantaði hana og er ekki kominn með hana í hendurnar ennþá. Ég skal leyfa þér að sjá hana þegar ég verð kominn með hana og þá benda þér á hjá hverjum ég pantaði hana, en ekki fyrr en ég er komin með vélina í hendurnar.
Það er hægt að fá þessar vélar á innannvið 10 þús kall ísl á ebay + flutning og tolla, en hvort þær eru jafn góðar og þessar 30-40 þús kr vélar sem þú færð hérna heima get ég ekki sagt neitt um.