Alpina wrote:Lánalöggan ,,hvað
Er ekki fínt bara að skulda sem minnst um þessar mundir
Annars er það hálfpartinn til að æra óstöðugann að hlusta á endalaust af "sérfræðingum" sem flest allir sveiflast bara eftir vindi þó þeir hafi haldið öðru fram fyrir nokkrum mánuðum síðan - og eru líklega lítið betri í sínum ágiskunum en api sem kastar pílu á spjald.
Einhvernveginn verður fólk að stóla á sjálft sig og vandaða kunningja til þess að sjá fótum sínum forráð.
Fart er hinsvegar búin að predika það sama hérna frá því fyrstu merkin byrjuðu að sjást - kannski hefði verið gott fyrir marga að hlusta á hann
Núh, svo má reyndar minnast á það líka að ástandið er ekki svo gott annarsstaðar t.d. hér í DK, það er kannski bara ekki komið jafnlangt og heima enda kannski reynsluríkara fólk í viðskiptum hér sem útskýrir kannski afhverju það steig varlega til jarðar á meðan aðrir létu gamminn geysa.
Annars fannst mér GSTuning koma með góðan punkt - maður verður alltaf jafn hissa þegar maður kemur heim í Leifsstöð og sér alla bílana úti - hvað gerðist eiginlega

Búið að selja íbúðir, kaupa dýrara, skuldsetja sig meira?
Maður hefur eiginlega mestar áhyggjur af gjaldeyristekjum þjóðarbúsins - dugar það til að borga af þessu skuldum umfram eignir?
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road