Jæja ég var bara semi þunnur í dag þannig að ég dreif mig í skúrinn.
Bjandrew voru uppteknir þannig að ég var bara solo í þetta skiptið.. ekki það skemmtilegasta sem ég geri að vinna einn í skúrnum
En ég var samt duglegur, festi vatnsdæluna aftur á, núna með nýrri pakkningu og nýjum boltum. Svo tengdi ég allt vatnskerfið sem við vorum búnir að rífa í sundur og kom vatnskassanum aftur á sinn stað.
Svo setti ég líka pústið saman, ný pakkning og allir boltar á sínum stað... núna vantar engan bolta þannig að það ætti ekki að pústa þar út
En ég á tíma í púst í fyrramálið.. ég veit ekki hvort ég næ því af því að ég á ennþá eftir að setja vatn á kerfið og lofttæma.. það verður að koma í ljós í fyrramálið. Annars ætla ég að reyna fá tíma á þriðjudaginn.. er í fríi þá og ætti að geta reddað öllu í engu stressi
Allavega þá virðist þetta ævintýri vera að fara taka enda... ég þarf bara að koma honum í púst og þá er ekkert eftir nema að bíða eftir að gstuning komi heim svo hann geti farið yfir mappið.
Svo bara út að spóla(tilkeyra)
