http://this.is/drgunni/okur.html
#355 Það er svo sem ekkert nýtt að tónlist sé dýr á Íslandi, sama hvort það séu erlendir geisladiskar eða íslensk tónlist. Ef maður vill t.d. ná í íslenska tónlist löglega á netinu þá verður maður að borga 149 kr fyrir nýleg lög á tónlist.is á meðan hvert lag kostar oftast 99 cent í erlendum netverslunum. Svo sem ekkert nýtt heldur.
Ég var hins vegar að komast að því að enska útgáfan af tónlist.is (tonlist.com) selur sömu íslensku lögin á 99 cent. Sami aðili er semsagt að selja útlendingum sömu vöru á ca 65kr og við eigum að borga fyrir 149kr. Þetta er yfir helmings munur. Og áður en eitthver nefnir virðisaukann þá er hann inni í 99 centunum.
Nú veit ég ekki hvort það er hægt að kaupa á tónlist.com þegar maður er staddur á Íslandi, (er staddur í DK) en ég get vel trúað því að þeir loki á Íslendinga. Ef ekki þá ættu íslendingar auðvitað að nota .com endingu, allir sem einn. (nb. Þetta er sama sindrómið og hjá Icelandair. Dýrt fyrir Íslendinga, ódýrari fluggjöld fyrir útlendinga á sömu ferðum...)
_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur

--