Takk fyrir þau svör sem eru komin, ég var einmitt að pæla í þessu með subframe-ið, en þetta er ekki bíll sem er búið að taka á. Allaveganna ekki í minni eigu. Hinsvegar hef ég heyrt með að þetta hafi verið viðurkenndur galli.
Angelic0- wrote:
Ég ætla að giska á að þetta sé Guibo púðinn hjá þér...
Þetta lýsir sér á sama hátt og þegar að hann fór í 730iA hjá mér...
svona "bling" hljóð sem að heyrist þegar að bíllinn er settur í Drive...
Þetta kostar á bilinu 7500-13000kr (fer eftir bíl).
Til að útskýra hvað Guibo púði er þá er það púðinn á milli skiptingar og drifskafts

Mæli eindregið með því að þú kannir þetta og skiptir þessu strax út því að annars áttu á hættu með að brjóta "output flangsinn" á skiptingunni og það gæti kostað stóra peninga

Mér fannst það einmitt koma aftanúr bílnum...
En já þetta hljómar sennilegt, þetta hljóð er svona "bling" hljóð eða eins og þegar glerflöskum er slegið saman, og kemur aftan úr bílnum.
Er eina leiðin til að komast að þessu með því að skipta um þetta og skoða svo? Get reyndar alveg látið fulllærðan bifvélavirkja kíkja á þetta, bara spurning hvort þetta sjáist um leið.
Sést einhvernveginn ef þessi búði er slitin?
... og er þetta þessi púði?
Kv . Dabbi[/url]
_________________
MMC L200 38" 2001
BMW 328 e46 *Loadaður* 18" ljúft....SOLD
Suzuki Vitara ´97 Vetrarbíter...SOLD
