Jæja
Keypti þennan bíl af vinnufélaga mínum í ársbyrjun...
Um er að ræða 2001 árgerð af 530i, fluttur inn af BogL (eins og allir mínir BMW-ar

)
Fyrsti eigandi kaupir bílinn nýjan af umboði, og á hann þangað til í september 2007 og er hann þá keyrður 19.300km
Þá Kaupir Bjarki Jónsson, kenndur við BogL, bílinn og tekur á hann inspection, rennir diska, fer með bílinn í smáréttingar og massar á honum lakkið, hann hugsaði þennan sem konubíl, en konan vildi ekki sleppa E46inum sínum, þannig að bíllinn verður til sölu.
Ég kaupi hann í byrjun Janúar, þá keyrðan 19.900km

Bíllinn er nánast óaðfinnanlegur að innan jafnt sem utan, og er alveg Lygilega þéttur!!!!
Bíllinn er óslitinn, óbeyglaður og órispaður, en ekki alveg gallalaus!
til að mynda er hann á herfilegum afa-felgum og ennþá herfilegri dekkjum, sem að henta eflaust þristi, en EKKI fimmu! en þetta eru vetrardekk, og verður kippt í liðinn!
Bíllinn er facelift, en það var val á sýnum tíma hvort að menn vildu orange eða hvít stefnuljós, og einhver sauðurinn hefur valið orange, en borgaði samt extra til að fá shadowline!
Ég er búinn að setja hvít stefnuljós að aftan og í frambretti, en kostnaðurinn við að losna við orange-ið úr framljósunum er bara of mikill til að ég geti réttlætt það
Bíllinn er ekki að drukkna í aukabúnaði, en dugir mér vel!
m.a. Leður, rafmagn og minni í öllu, xenon + angel eyes, regnskynjari og flr.
Einnig setti ég í hann blá angel eyes frá Þórði, en Aroni Andrew tókst einhvern veginn að mynda þau gul

Jæja, BARA mikið blaður, sem að ekki nokkur maður nennir að lesa, þannig að ég hendi bara inn nokkrum myndum!











Myndir að innan vegna fjölda áskorana!







_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,